Ronaldo skoraði loksins og tryggði Real Madrid sigur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Cristiano Ronaldo fagnar marki sínu.
Cristiano Ronaldo fagnar marki sínu. vísir/getty
Cristiano Ronaldo tryggði Real Madrid 3-2 sigur á Málaga í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Þetta var aðeins annað deildarmark Ronaldos á tímabilinu en það kom á 76. mínútu. Portúgalinn fylgdi þá eftir sinni eigin vítaspyrnu sem Roberto Jiménez varði.

Karim Benzema kom Madrídingum yfir á 9. mínútu en Diego Rolán jafnaði metin níu mínútum síðar.

Casemiro kom Real Madrid í 2-1 á 21. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Chory Castro jafnaði í 2-2 á 58. mínútu en Ronaldo átti síðasta orðið eins og áður sagði.

Real Madrid er nú sjö stigum á eftir toppliði Barcelona sem á leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira