Innlent

Málinu lokað í dag eða á morgun

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Línur í ríkisstjórnarviðræðum Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins munu skýrast á morgun. Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.

Ríkisstjórnarmyndunarviðræður flokkanna þriggja eru, eins og áður hefur komið fram langt komnar. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, sagði „málinu lokað“ annað hvort í dag eða á morgun er hún ræddi við Kristján Kristjánsson í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. 

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.vísir/anton brink
„Við erum langt komin. Við erum ekki búin að loka málinu en það hvílir á okkur að gera það í raun og veru í dag eða á morgun,“ sagði Katrín sem sagði tímann til viðræðna nú um það bil að renna út. 

„Þannig að við erum að vinna þetta þannig að sá tími sem við höfum gefið okkur hann fer að verða á enda.“ 

Katrín var gestur Heimis Más Péturssonar í þættinum Víglínunni í gær og sagði þar væntanlega stjórnarmyndun vissulega verða „mjög knappa“. Þá viðurkenndi hún einnig að áhætta væri fólgin í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Pólitík þyrfti þó ofar öllu að snúast um hagsmuni samfélagsins en ekki einstaklinga eða flokka.

Frábrugðið stjórnarmyndunarviðræðum að vori

Þá nefndi Katrín í Sprengisandi í morgun að helstu ágreiningsefni flokkanna lytu að fjármögnun á ýmsum verkefnum ríkisstjórnarinnar. Fjármálin gegni þá ekki síst stóru hlutverki í viðræðunum vegna þess tíma árs sem nú er. Flokkarnir þrír standi því frammi fyrir tveimur veigamiklum verkefnum, ólíkt því sem hefðbundið er eftir kosningar að vori. Það að „loka málinu“ sé tvíþætt ferli.

„Það þýðir í raun og veru annars vegar að ljúka málinu með samningi og hins vegar, það sem spilar inn í og gerir þetta aðeins lengra en stjórnarmyndunarviðræður að vori, þegar við kjósum á eðlilegum tíma, það er auðvitað sú staðreynd að við erum með fjárlög sem samþykkja þarf fyrir áramót,“ sagði Katrín. Hún sagði síðustu daga enn fremur að miklu leyti hafa farið í vinnu við fjárlögin.

„Við erum að fara yfir tillögur í fjárlögum samhliða þessum lokametrum í málefnasamningi.“

Morgundagurinn gæti því mögulega haft stórar fregnir í för með sér en nú eigi í raun aðeins eftir að loka ákveðnum málaflokkum, lokahnykkurinn standi út af.

„Á morgun ættu línur að skýrast,“ sagði Katrín, sem enn er nokkuð bjartsýn á að stjórnarmyndun flokkanna þriggja gangi upp. „Algjörlega. Nú er bara af eða á.“

Viðtalið Katrínu í Sprengisandi má hlusta á í heild sinni í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

„Þetta verður mjög knappt“

Hún sagðist bjartsýn á að flokkarnir næðu saman um myndun ríkisstjórnar en það yrði þó knappt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×