Formúla 1

Bottas: Ég varð þriðji í ár og ætla að verða betri á næsta ári

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Valtteri Bottas vann og fagnar á viðeigandi hátt.
Valtteri Bottas vann og fagnar á viðeigandi hátt. Vísir/Getty
Valtteri Bottas á Mercedes vann sína þriðju keppni á ferlinum og tímabilinu í dag. Hann vann síðustu keppni tímabilsins í Abú Dabí. Hver sagði hvað eftir keppnina?

„Þettar er mikilvæg keppni fyrir mig að vinna. Ég er búinn að þurfa að vinna af hörku í mínum málum og það er gott að það skili sér. Ég vil óska Lewis til hamingju með fjórða titilinn og Sebastian með annað sætið. Ég varð þriðji í ár og ég ætla að verða betri á næsta ári. Hraðinn var góður í dag og við gátum stjórnað keppninni,“ sagði Bottas.

„Ég gaf allt til að reyna að taka farm úr Valtteri í dag og ég vil óska honum innilega til hamingju með keppnina. Ég hlakka til að koma sterkari til keppni á næsta ári,“ sagði Lewis Hamilton sem var heimsmeistari ökumanna í ár, í fjórða sinn.

„Ég var frekar einmanna, eftir fyrstu fimm hringina þá var ég bara fastur, komst ekki hraðar og þeir óku örlítið hraðar og fóru. Ég vil óska Lewis til hamingju, ég get varla sagt þetta en hann var betri maðurinn í ár, því miður. Við munum vinna hörðum höndum að því í vetur að koma út á næsta ári á toppnum,“ sagði Sebastian Vettel sem varð í fyrsta skipti í öðru sæti í heimsmeistarakeppni ökumanna.

„Góður dagur fyrir Valtteri og frábært fyrir hann að fara með þetta inn í veturinn. Lewis reyndi hvað hann gat og reyndi virkilega að ógna Valtteri,“ sagði Niki Lauda, sérstakur ráðgjafi Mercedes liðsins og þrefaldur heimsmeistari í Formúlu 1.

Felipe Massa hefur átt viðburðaríkan og glæstan feril í Formúlu 1.Vísir/Getty
„Ég er ánægður fyrir hönd Valtteri. Hann var búinn að glíma við vandræði seinni hluta tímabilsins og hann er að sigrast á þeim. Við erum venjulega með vélina í botni þegar við erum að keppa við aðra. Við vildum breyta til í dag og prófa að setja allt í botn í innbyrðis baráttu líka. Það er nýtt fyrir okkur. Nú þrufum við að setja hausinn undir okkur og leggja áherslu á að smáatriðin fari að falla frekar með okkur á næsta ári,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes.

„Mér fannst óþægilegt að taka þjóustuhléið þar sem ég tók út refsinguna vegna þess að það var afar langt, fyrir utan refsinguna. Við erum afar ánægð með niðurstöðuna í dag. Ég hafði engan stað til að fara frá Sergio Perez á fyrsta hring þegar hann rann út af með læst dekk. Ég hefði getað tekið beygjuna,“ sagði Nico Hulkenberg sem varð sjötti í dag og tryggði Renault sjötta sæti í dag í keppni bílasmiða.

„Hulkenberg fékk refsingu og við sættum okkur við það. Ég tel að við höfum hegðað okkur skynsamlega í dag. Nico hefur verið afar góður í dag og raunar alla helgina. Ég get eingunis munað eftir tveimur keppnum þar sem við misstum aðeins af tækifærum. Við erum afar ánægð með árangurinn. Carlos lenti því miður í mistökum á þjónustusvæðinu. Við þurfum að skoða þetta betur í vetur og við erum nú þegar búin að hanna felgurónna fyrir næsta ár til að minnka líkurnar á þessu sem kom fyrir Carlos,“ sagði Cyril Abiteboul, liðsstjóri Renault, sem var afar ánægður með að komast upp í sjötta sæti í keppni bílasmiða.

„Það var gaman að vera í Formúlu 1 í 16 ár. Keppnin var góð í dag og það var gaman. Ég er búinn að vera lukkulegur með feril minn í frábærum liðum og ég hef fengið að keppa gegn nokkrum af þeim allra bestu. Ég mun sakna þess að keppa í bestu mótaröð í heimi gegn þeim bestu í heimi,“ sagði Felipe Massa sem er þar með hættur keppni í Formúlu 1. Hann varð tíundi á Williams bílnum í dag.


Tengdar fréttir

Valtteri Bottas á ráspól í Abú Dabí

Valtteri Bottas á Mercedes náði í síðasta ráspól tímabilsins í Formúlu 1 í Abú Dabí í dag. Lewis Hamilton á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.

Bottas: Nú ætla ég að vinna á morgun

Valtteri Bottas náði sínum öðrum ráspól í röð í dag. Hann var óstöðvandi á Mercedes bílnum. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Valtteri Bottas vann í Abú Dabí

Valtteri Bottas á Mercedes vann síðustu keppni tímabilsins í Formúlu 1. Lewis Hamilton, heimsmeistari ökumanna í ár, á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×