Innlent

18 stiga frost í nótt og gæti orðið enn kaldara

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Er metið að fara að falla?
Er metið að fara að falla? Vísir/Sammi
Veðurstofan telur að þó ólíklegt sé að dægurlágmarkshitametið falli í dag sé það þó alls ekki ómögulegt.

Fyrra met var sett í Möðrudal árið 1978 en þá var 24.2 stiga frost. Frost fór niður fyrir 18 stig í nótt sumsstaðar á hálendinu og það herðir dálítið á frosti með deginum að sögn veðurfræðings Veðurstofunnar. Því sé ekki útilokað að frostið kunni að slá fyrra met í dag.

„Það mætti því segja að framvarðasveitir veturkonungs séu á landinu, en þær verða hraktar burt um miðja viku þegar að hvessir úr suðvestri með súld og rigninu vestanlands og hlýnar vel yfir frostmark,“ segir í hugleiðingum veðurfræðingsins.

Annars er hæg norðlæg eða breytileg átt en 5 til 10 m/s austast á landinu. Norðvestan 8 til 13 suðaustantil á morgun en hægari vindur annarsstaðar.

Skýjað með köflum um landið norðanvert og dálítl él með norður- og austurströndinni en léttskýjað syðra. Frost yfirleitt á bilinu 4 til 14 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:

Hæg norðlæg eða breytileg átt, en 5-10 m/s við norður- og austurströndina. Skýjað og dálítil él norðantil, en bjartviðri sunnanlands. Frost 2 til 12 stig. 



Á miðvikudag:

Vestan og suðvestan 3-10 m/s. Skýjað og dálítil él norðanlands, en bjartviðri á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hlýnandi veður. 

Á fimmtudag:

Suðvestan 8-13 og súld með köflum vestanlands en heldur hægari og bjartviðri austanlands. Hiti 2 til 7 stig. 

Á föstudag:

Suðvestan 8-15 og rigning um landið sunnan- og vestanvert. Hægari vindur og þurrt norðaustanlands. Hiti 4 til 9 stig. 

Á laugardag og sunnudag:

Útlit fyrir ákveðna vestanátt með skúrum um landið vestanvert en áfram þurrt austantil. Hiti 0 til 5 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×