Sport

Hrútarnir stöðvuðu sigurgöngu Dýrlinganna

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Varnarmaður Rams, Alec Ogletree, stöðvar hér Mark Ingram, hlaupara Saints.
Varnarmaður Rams, Alec Ogletree, stöðvar hér Mark Ingram, hlaupara Saints. vísir/Getty
Átta leikja sigurganga New Orleans Saints endaði í Los Angeles í gær er liðið tapaði gegn sterku liði LA Rams.

Rams-liðið hafði tapað vikunni áður og margir biðu spenntir eftir að sjá hvernig liðið myndi bregðast við. Svarið var fullkomlega því liðið var frábært og New Orleans átti í raun aldrei möguleika.

Philadelphia Eagles er enn með besta árangur deildarinnar en liðið er 10-1 eftir að hafa pakkað Chicago saman í gær.

Það var mikil dramatík í næturleiknum á milli Pittsburgh og Green Bay þar sem Steelers tryggði sér sigurinn með vallarmarki í lokin. Antonio Brown átti enn einn stórleikinn fyrir Steelers með hátt í 200 jarda og tvö snertimörk.

Úrslit:

Pittsburgh-Green Bay  31-28

Atlanta-Tampa Bay  34-20

Cincinnati-Cleveland  30-16

Indianapolis-Tennessee  16-20

Kansas City-Buffalo  10-16

New England-Miami  35-17

NY Jets-Carolina  27-35

Philadelphia-Chicago  31-3

San Francisco-Seattle  13-24

LA Rams-New Orleans  26-20

Arizona-Jacksonville  27-24

Denver-Oakland  14-21

Staðan í NFL-deildinni.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×