Viðskipti erlent

Umdeildir fjárfestar að baki kaupum á Time

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Donald Trump var maður síðasta árs að mat Time.
Donald Trump var maður síðasta árs að mat Time. VÍSIR/AFP
Bandaríska útgáfufyrirtækið Meredith Coropration mun festa kaup á samkeppnisaðila sínum, hinum nafntogaða tímaritaútgefanda Time Inc, fyrir 2,8 milljarða dala, eða 300 milljarða króna.

Meredith, sem rekur sjónvarpsstöðvar og gefur út blöð og tímarit, hefur tvívegis áður gert tilboð í Time en ekki borið erindi sem erfiði, fyrr en nú.

Time hefur átt í miklum fjárhagsvandræðum frá árinu 2014 þegar það sagði skilið við móðurfélagið Time Warner. Minnkandi auglýsingasala og færri áskrifendur hafa dregið úr tekjum félagsins sem féllu um 9,5 prósent á síðasta ársfjórðungi. Time hefur ekki tekist að uppfylla tekjuvæntingar fjárfesta sex ársfjórðunga í röð.

Í yfirlýsingu frá forstjóra Time, John Fahey, segir hann að samkomulagið sé það besta í stöðunni fyrir fyrirtækið. Með kaupunum muni tekjur Time af auglýsingasölu á netinu nema um 700 milljónum dala, næstum 72 milljörðum króna, á sama tíma og snertiflötur félagsins við hina mikilvægu aldamótakynslóð eykst gríðarlega.

Mótmælagöngur og undirskriftasafnanir settu svip sinn á orðróma um möguleg kaup Koch-bræðra á tveimur fjölmiðlum árið 2013.Vísir/Getty
Umdeildir bakhjarlar

Margir hafa sett spurningamerki við samrunann, ekki síst vegna aðkomu fjárfestanna Charles og David Koch að samningnum en þeir lögðu 650 milljónir dala til kaupanna.

Koch-bræðurnir svokölluðu hafa látið að sér kveða í stjórnmálum vestanhafs sem bakhjarlar frambjóðenda sem ýmist hafa íhaldssöm gildi í heiðri eða berjast fyrir aukinni frjálshyggju í efnahagsmálum. Á heimasíðu Koch Industries segir meðal annars að „í hugum milljóna Bandaríkjamanna haldast hugtökin „Koch-bræður“ og „pólitískur aktívismi“ í hendur.“

Í því ljósi óttast margir að þeir muni nýta aðkomu sína að Time til þess að ýta enn fremur undir áróður sinn. Þannig var því harðlega mótmælt árið 2013 þegar fregnir bárust af mögulegum kaupum Koch-bræðra á dagblöðunum Los Angeles Times og Chicago Tribune.

Stjórnendur Meridith segja þetta þó óþarfa áhyggjur enda muni Koch-bræður ekki taka sæti í stjórn fyrirtækisins. Að sama skapi munu þeir ekki fá að hafa áhrif á ritstjórnarstefnu fyrirtækisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×