Sport

Jordan kominn á Vikings-vagninn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jordan og Rashad eru miklir vinir og fara saman á marga íþróttaviðburði.
Jordan og Rashad eru miklir vinir og fara saman á marga íþróttaviðburði. vísir/getty
Þó svo besti körfuboltamaður allra tíma, Michael Jordan, hafi spilað lengi í Chicago þá heldur hann ekki með Chicago Bears í NFL-deildinni.

Jordan er eigandi NBA-liðsins Charlotte Hornets en þrátt fyrir það styður hann ekki Carolina Panthers.

Einn besti vinur Jordan, sjónvarpsmaðurinn Ahmad Rashad, er nefnilega búinn að fá Jordan til þess að styðja Íslandsvinina í Minnesota Vikings sem hafa verið á flugi í vetur.

„Ég er búinn að gera Michael Jordan að stuðningsmanni Vikings,“ sagði Rashad en þeir félagar hafa horft saman á nánast alla leiki Vikings í vetur.

„Hann hélt með Patriots en er núna kominn á Vikings-vagninn. Hann fagnar þeim innilega og horfir meira að segja á þá þó svo ég sé ekki með honum. Eftir leik um daginn hringdi hann í mig sigri hrósandi eftir sigur Vikings.“

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×