Sport

Sleit gullkeðjuna aftur af Crabtree

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þessir menn þola ekki hvorn annan.
Þessir menn þola ekki hvorn annan. vísir/afp
Það brutust út mikil slagsmál í leik Oakland Raiders og Denver Broncos í NFL-deildinni í gær. Líkt og í leik liðanna í fyrra byrjuðu lætin hjá Aqib Talib, varnarmanni Denver, og Michael Crabtree, útherja Raiders.

Það muna eflaust margir eftir því þegar Talib reif gullkeðjuna af Crabtree í fyrra. Það kunni hann ekki að meta. Slagsmálin í gær enduðu líka með því að gullkeðjan var slitin af útherjanum.

Að þessu sinni tóku fjölmargir leikmenn þátt í slagsmálunum en aðeins Talib og Crabtree voru reknir í sturtu.

Hér má sjá slagsmálin sem og þegar Talib tók keðjuna af Crabtree í fyrra.

NFL

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×