Viðskipti innlent

Erlend verslun að færast aftur heim

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Vísbendingar eru um að dregið hafi úr verslunarferðum Íslendinga til annarra landa og að erlend verslun sé að færast aftur heim, segir framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Líklegasta skýringin séu erlendar hefðir sem hafa verið að ryðja sér til rúms hér á landi. Lögfræðingur hjá Neytendastofu biður fólk um að vera á varðbergi því dæmi séu um að verslanir misnoti sér kaupgleði landans.

Erlendar hefðir að festa sig í sessi

Kaupmenn hafa undanfarnar vikur auglýst útsölur sem aldrei fyrr en tilefnið eru stórir afsláttardagar sem allir eiga rætur sínar að rekja til útlanda, og virðast vera að ryðja sér til rúms hér á landi. Hvert sölumetið á fætur öðru hefur fallið, og fastlega er gert ráð fyrir að nýtt met falli í dag á rafrænum mánudegi, eða Cyber Monday, þar sem netverslanir bjóða afslætti.  

Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að þrátt fyrir að vissulega séu skiptar skoðanir á ágæti erlendra hefða hér á landi – sé það ljóst að neytendur fagni lægra vöruverði.

„Þessir þrír stóru dagar núna í nóvember hafa að okkar mati haft þau áhrif að það er mun minni hvati til þess að fara í svokallaðar verslunarferðir til útlanda og fólk getur gert sömu reifarakaupin hér og það gerir annars staðar. Enda held  ég að það sé alveg ljóst að það hefur dregið mjög úr verslunarferðum til borganna í kringum okkur og það má rekja til þess að fólk getur gert góð eða jafngóð kaup hérna heima,“ segir Andrés. Þá hafi dagarnir sömuleiðis haft jákvæð áhrif á jólaverslun.

„Þetta hefur haft þau áhrif að jólaverslun dreifist meira. Þ.e stærri hluti jólaverslunarinnar verður í nóvembermánuði og það er jákvætt," segir hann.

En er fólk að kaupa meira?

„Örugglega. Það er tilgangurinn með þessu öllu saman."

Þórunn tekur fram að þó ábendingum hafi ekki fjölgað í ár - séu þær alltaf til staðar.
Ekki allir sem standa sína plikt

Þórunn Anna Árnadóttir, sviðsstjóri neytendaréttarsviðs Neytendastofu, tekur undir það að lægra vöruverð sé alltaf gleðiefni. Hins vegar séu dæmi um að verslanir misnoti sér kaupgleði Íslendinga og hækki verð rétt fyrir útsölur. Hún hvetur fólk til þess að fylgjast vel með og að hafa samband við stofnunina, telji það sig hafa verið svikið.

„Í gegnum tíðina höfum við fengið mjög mikið af ábendingum um það og það eru neytendur sem hafa fylgst með vörunum og séð að þær eru á tilteknu verði,“ segir hún. „Við erum núna með til skoðunar ábendingar um að fyrirtæki hafi hreinlega hækkað verð og að verðið á útsölu sé í rauninni hærra en áður en útsalan byrjaði.“

Þórunn bendir á að hægt sé að senda ábendingar í gegnum vefsíðu Neytendastofu; www.neytendastofa.is.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×