Íslenski boltinn

Rakel farin til Sviþjóðar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rakel fagnar í leik með Blikum.
Rakel fagnar í leik með Blikum. vísir/anton
Fótboltaparið Rakel Hönnudóttir og Andri Rúnar Bjarnason mun spila sinn fótbolta í Svíþjóð á nýju ári.

Andri Rúnar var búinn að semja við Helsingborg og í morgun samdi Rakel við úrvalsdeildarliðið Limhamn Bunkeflo 07 sem er frá Malmö.

Þar er fyrir landsliðskonan Anna Björk Kristjánsdóttir. Rakel yfirgefur þar með herbúðir Blika þar sem hún hefur spilað frá 2012.

Limhamn endaði í níunda sæti í sænsku úrvalsdeildinni þar sem það var nýliði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×