Tónlist

Kaleo og Jóhann Jóhannsson tilnefnd til Grammy

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jóhann Jóhannsson á rauða dreglinum á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 2015. Kaleo hefur verið að slá í gegn ytra á árinu.
Jóhann Jóhannsson á rauða dreglinum á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 2015. Kaleo hefur verið að slá í gegn ytra á árinu. vísir/getty
Jóhann Jóhannsson er tilnefndur til Grammy-verðlauna fyrir bestu tónlistina í kvikmynd en hann gerði tónlistina fyrir kvikmyndina Arrival sem kom út árið 2016. Hljómsveitin Kaleo er einnig tilnefnd til Grammy-verðlauna fyrir besta rokkflutning ársins á laginu No Good.

Grammy-verðlaunahátíðin verður haldin hátíðlega 28. janúar í Madison Square Garden í New York. Kynnir kvöldsins verður James Corden, en um er að ræða 60. Grammy-verðlaunahátíðina.

Rapparinn Jay-Z er tilnefndur til átta verðlauna og Kendrick Lamar er tilnefndur til sjö. Jay-Z hefur nú þegar unnið 21 Grammy-verðlaun. Hér má sá alla þá sem tilnefndir eru þetta árið.

Tilnefningar fyrir besta rokkflutning

Leonard Cohen - You Want It Darker

Chris Cornell - The Promise

Foo Fighters - Run

Kaleo - No Good

Nothing More - Go to War

Verðlaun í flokki besta rokkflutnings (e. Best Rock Performance) eru veitt fyrir rokklög sem eru flutt af einstaklingi, dúett, hljómsveit eða í samvinnu við aðra og einskorðast við stök lög.

Sigurvegari síðasta árs var David Bowie fyrir Blackstar.

Tilnefningar fyrir bestu kvikmyndatónlist

Arrival - Jóhann Jóhannsson

Dunkirk - Hans Zimmer

Game Of Thrones: Season 7 - Ramin Djawadi

Hidden Figures - Benjamin Wallfisch, Pharrell Williams, Hans Zimmer

La La Land - Justin Hurwitz

Verðlaun í flokki kvikmyndatónlistar (e. Best Score Soundtrack for Visual Media) eru veitt fyrir frumsamda tónlist við kvikmynd, sjónvarpsþátt/þætti, tölvuleiki eða aðra sjónræna miðla.

Sigurvegari síðasta árs var John Williams fyrir Star Wars: The Force Awakens.

Jóhann hefur unnið til verðlauna á Golden Globe verðlaunahátíðinni og verið tvisvar tilnefndur til Óskarsverðlauna og þrisvar BAFTA. Fyrir Arrival hlaut hann tilnefningar hjá Golden Globe og BAFTA en var ekki gjaldgengur til Óskars þar sem hann vann m.a. út frá stefi annars tónskálds og það samræmdist ekki reglum þar á bæ.


Tengdar fréttir

„Þetta er að sjálfsögðu gríðarlegur heiður“

Kaleo hefur selt milljón eintök af smáskífu sinni Way Down We Go í Bandaríkjunum, en það er platínusala. Sveitinni var afhent platínuplata í New York borg á dögunum. Sveitin er nú á ansi stífu tónleikaferðalagi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×