Körfubolti

Fannar: Stór mistök að hafa Tryggva ekki inn á undir lokin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fannar Ólafsson, fyrrverandi landsliðsmiðherji og sérfræðingur Domino's Körfuboltakvölds á Stöð 2 Sport, skilur ekki af hverju Tryggvi Snær Hlinason var ekki inn á hjá íslenska landsliðinu undir lok leiksins gegn Búlgaríu í gær.

Tryggvi spilaði tæpar 22 mínútur í leiknum í gær sem tapaðist, 74-77. Bárðdælingurinn skoraði sex stig, tók sex fráköst, gaf þrjár stoðsendingar og varði sex skot. Hann var með 18 framlagsstig.

„Ég er á því að þjálfarinn, eða þjálfarateymið, hafi gert stór mistök undir lokin á þessum leik, að spila Tryggva ekki meira,“ sagði Fannar í samtali við Guðjón Guðmundsson í Sportpakkanum á Stöð 2 í kvöld.

„Það komu einhverjar útskýringar að hann hefði þurft að stíga upp á móti þessari stóru skyttu. Ég veit það ekki, viltu ekki hafa aðila til að stoppa þessi fimm sóknarfráköst sem þeir tóku síðustu sex mínúturnar eða loka teignum almennilega. Ég var ekki sáttur með þetta.“

Landsliðsþjálfarinn Craig Pedersen hefur fengið sinn skref af gagnrýni að undanförnu, m.a. eftir EM í haust þar sem Ísland tapaði öllum fimm leikjum sínum.

„Mér fannst liðin sem við spiluðum á móti á EM vera betri en við. Það þurfti að gera breytingar því liðin voru búin að leikgreina okkur og tóku okkur í bakaríið. Þá þarftu að laga þig að aðstæðum. Þú kemur inn í næstu keppni og það er greinilega búið að leikgreina íslenska liðið áfram. Ég skrifa þetta algjörlega á þjálfarann,“ sagði Fannar.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Klaufalegt tap fyrir Búlgörum í Höllinni

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta kastaði frá sér unnum leik gegn Búlgaríu í undankeppni HM í gær. Strákarnir spiluðu vel lengst af en sóknin hrökk í baklás undir lokin. Ísland hefur tapað báðum leikjum sínum í undankeppninni.

Martin: Þetta verður erfið nótt

"Við þurftum að vinna þennan leik, vorum með hann í höndunum í 38 mínútur en klúðrum þessi bara í lokin,“ segir Martin Hermannsson, stigahæsti leikmaður íslenska liðsins í kvöld. Martin skoraði 21 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×