Íslenski boltinn

Kristinn má ekki æfa með KR

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristinn í KR-búningnum.
Kristinn í KR-búningnum. vísir/eyþór
Kristinn Jónsson, einn af nýju leikmönnunum í KR, má ekki æfa né spila með liðinu fyrr en á nýju ári. Þetta kemur fram á 433.is.

Kristinn gekk í raðir KR frá Breiðabliki í haust. Hann er þó enn samningsbundinn Blikum og þeir leyfa honum ekki að æfa né spila með KR meðan samningurinn er í gildi. Samningur Kristins rennur út 1. janúar.

„Hann er samningsbundinn Breiðabliki til 1. janúar, þeir hafa ekki gefið honum leyfi til að æfa með okkur. Þannig er staðan,“ segir Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, í samtali við 433.is.

„Við höfum reynt að tala við Breiðablik og Kristinn hefur reynt það líka en án árangurs. Blikar eru í fullum rétti á að gera þetta,“ bætti Rúnar við.

Kristinn er einn þriggja leikmanna sem KR hefur fengið eftir að síðasta tímabili lauk. Hinir eru Björgvin Stefánsson og Pablo Punyed.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×