Lífið

Smitandi kattafár á Facebook

Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir skrifar
Einn skemmtilegasti Facebook-hópur á Íslandi er án efa hópurinn Spottaði kött. Markmið hópsins er að kattavinir setji inn myndir af köttum sem þeir hitta á förnum vegi. Kötturinn Púki hefur slegið í gegn á síðunni og fjölmargir meðlimir hópsins ná mynd af honum. Einstaka er svo heppinn að fá sjálfur með þessum ferfætta snillingi sem hefur nú fengið sína eigin Facebook-síðu sem Púki kötturinn.

Fleiri kettir hafa slegið í gegn, margir hverjir kostulegir og eiga sér fjölmarga fylgjendur sem keppast við að setja inn myndir af þeim á síðuna Spottaði kött. Í Facebook hópnum eru um 5.000 manns nú þegar og fer hann stækkandi með hverjum deginum.

Púki á baki Rúdólfs vinar síns í Around Iceland.

Púki læðupokast á Laugavegi

Blaðamaður, sem er sérstaklega kattgóður, fór á stúfana og freistaði þess að finna Púka í eigin persónu. Kötturinn varð ekki á vegi blaðamanns í þetta sinn en starfsmenn verslana og fyrirtækja sem blaðamaður ræddi við voru allir á einu máli um að kettirnir lífguðu upp á daginn og að fáir ömuðust við þeim.

Jafnframt voru þau sammála um að erlendir ferðamenn væru sérstaklega ánægðir með kattafárið í verslunum bæjarins. Kisur bæjarins veita Hallgrímskirkju nú harða samkeppni sem vinsælasta myndefni ferðamanna í miðbæ Reykjavíkur.

Púki flatmagar á skrifstofu í miðbænum.
Kötturinn Púki er sannarlega forvitinn líkt og katta er siður. Konungsríki Púka er neðarlega á Laugaveginum. Þar drottnar hann og tvífættir þegnar hins ferfætta Púka bugta sig og beygja fyrir honum og ganga erinda kattarins af mikilli auðmýkt.

Með sjarma og ljúfu augnaráði uppsker hann klapp, athygli og mat. Líkt og fleiri miðbæjarkettir er Púki gjarn á að leggja sig úti í glugga og kippir sér ekki upp við það að vera myndaður af aðdáendum sínum. Heyrst hefur að í einstaka verslunum leynist harðfiskbiti sem gott er að narta í.

Elísabet Ormslev, söngkona og starfsmaður Maclands, er stórvinkona Púka og setur reglulega inn myndir af heimsóknum kattarins í verslunina. Við mynd af honum að stara út um búðagluggann skrifaði Elísabet: „Púki var ekki par sáttur við veðrið í morgun, leitaði skjóls hjá okkur í Macland, glápti út um gluggann og mjálmaði stanslaust. Þvílíkur meistari!“

Þórunn Antonía og Púki saman á Lebowski Bar.
Púki er reglulegur gestur í ferðaþjónustufyrirtækinu Around Ice­land þar sem hann lítur á sjálfan sig sem hluta af starfsliðinu. Púki stekkur oft á bak Rúdólfi sem kippir sér lítið upp við brölt kattarins, enda uppstoppaður.

Púki er næturdýr og vill vera þar sem að fjörið er. Hann er fastagestur á Lebowski bar, þar á hann sinn fasta samastað úti í glugga.

Vegfarendur eru duglegir að smella mynd af honum þar sem að hann kúrir áhyggjulaus með „einn tvöfaldan“ mjólk í skál.

Púki djammar oft fram undir morgun, skríður heim klukkan fjögur á nóttunni með viðkomu á Prikinu – en þar sniglast hann á milli fólks og nælir sér í klapp og knús áður en að hann heldur áfram ferð sinni um konungsríkið Laugaveg.

Hver veit nema söngkonan Þórunn Antonía og Púki syngi saman kattadúettinn í karókí?



Herra Baktus er heimsfrægur á Instagram

Það lá við katta­slag eitt sinn þegar Púki mætti í Austurstræti, umráðasvæði Herra Baktusar, en inn á þann vígvöll hætta sér bara hugrökkustu kettir.

Herra Baktus er kóngurinn í Austurstræti, hann dvelur löngum stundum í verslun Icewear þar sem áður stóð Búnaðarbankinn og fer reglulega í eftirlitsferðir í Gyllta köttinn, en þar á hann heima.



Herra Baktus baðar sig í athygli og hefur vakið mikla eftirtekt erlendra ferðamanna sem keppast við að ná myndum af sér með kisa.

Herra Baktus er með 5.668 fylgjendur á Instagram undir heitinu baktusthecat, þar er hann merktur með myllumerkinu #baktus.

Rósalind á leið á fyrirlestur.

Lærdómslæðan Rósalind

Kettir eru ákaflega forvitnir og láta fátt fram hjá sér fara. Læðan Rósalind er einstaklega fróðleiksfús og heldur til á háskólasvæðinu, sérstaklega við Hámu, matsölu stúdenta.

Rósalind er sögð prýðilega námsfús köttur og nýlega sást hún á leið í fyrirlestur í Lögbergi.

Þessi kisa kúrir jafnan í glugga í Bankastræti.

Lifandi gluggaskraut

Þessi litla kisa venur komur sínar í verslun Cintamani í Bankastrætinu.

Þar kúrir hún áhyggjulaus í útstillingarglugga verslunarinnar og vekur mikla kátínu viðskiptavina og starfsmanna búðarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×