Innlent

Telur ólíklegt að einhver formannanna þriggja fari á Bessastaði í dag

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Katrín Jakobsdóttir þegar hún kom til fundar við þingflokk sinn í morgun.
Katrín Jakobsdóttir þegar hún kom til fundar við þingflokk sinn í morgun. vísir/eyþór
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, telur ólíklegt að einhver formannanna þriggja, það er að annað hvort hún, formaður Framsóknarflokksins eða formaður Sjálfstæðisflokksins, fari til fundar við Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, á Bessastöðum í dag og fái umboð til stjórnarmyndunar.

Þetta sagði hún við Heimi Má Pétursson, fréttamann Stöðvar 2, að loknum þingflokksfundi Vinstri grænna í morgun.

Katrín sagði jafnframt að enn væri verið að stilla upp þeim málefnum sem flokkarnir þrír geta komið sér saman um og ítrekaði að hún væri reiðubúin til að leiða viðræður flokkanna ef af þeim verður.

Þingflokkar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks funduðu einnig í morgun um stöðuna í óformlegum þreifingum flokkanna um myndun ríkisstjórnar.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar, að það ætti að skýrast í dag hvort farið verði í formlegar viðræður en eftir fundinn sagði hann að það ætti að koma í ljós á næstu dögum.


Tengdar fréttir

Þingflokkur Vinstri grænna fundar í morgunsárið

Ekki fást upplýsingar um hvað verður rætt á fundinum en fastlega má gera ráð fyrir að farið verði yfir stöðuna í óformlegum þreifingum Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um mögulegt ríkisstjórnarsamstarf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×