Umfjöllun: Ísland - Svartfjallaland 62-84 | Fín frammistaða en bitlaus sóknarleikur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þóra Kristín Jónsdóttir keyrir upp að körfu Svartfjallalands.
Þóra Kristín Jónsdóttir keyrir upp að körfu Svartfjallalands. vísir/andri marinó
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tapaði 62-84 fyrir Svartfjallalandi í fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2019 í Laugardalshöllinni í dag.

Ísland spilaði vel í fyrri hálfleik og vörnin var lengst af góð en sóknin gekk illa, þá sérstaklega í 3. leikhluta þar sem íslenska liðið skoraði aðeins átta stig.

Hildur Björg Kjartansdóttir var stigahæst í liði Íslands með 23 stig. Helena Sverrisdóttir hitti illa en skilaði 18 stigum, 10 fráköstum og níu stoðsendingum. Flestar, ef ekki allar, stoðsendingar Helenu voru á Hildi.

Íslenska liðið byrjaði leikinn af fínum krafti og hélt í við það svartfellska framan af. Eftir að Helena Sverrisdóttir setti niður þrist og minnkaði muninn í 10-12 tók spænskur þjálfari Svartfjallalands, Roberto Iniguez, leikhlé, enda mjög ósáttur við varnarleik sinna stelpna.

Eftir þetta dró í sundur með liðunum. Íslenska vörnin réði lítið við Jelenu Dubljevic, fyrirliða Svartfjallalands, sem skoraði 15 stig í 1. leikhluta. Að sama skapi hrökk íslenska sóknin í baklás þegar Helena hvíldi.

Svartfjallaland leiddi með níu stigum, 15-24, eftir 1. leikhluta og var með yfirhöndina framan af 2. leikhluta. Svartfellingar komust í 17-30 en Íslendingar svöruðu með 8-0 kafla og minnkuðu muninn í fimm stig, 25-30.

Íslenska vörnin hélt vel í 2. leikhluta og samvinna Helenu og Hildar Bjargar skilaði góðum körfum.

Staðan í hálfleik var 32-37, gestunum frá Svartfjallalandi í vil og allt opið fyrir seinni hálfleikinn.

Í 3. leikhluta sýndi svartfellska liðið hvers það er megnugt. Íslensku stelpurnar áttu í miklum vandræðum í sókninni, sérstaklega síðustu mínútur leikhlutans þar sem þær náðu varla skotum á körfuna og töpuðu boltarnir hrönnuðust upp. Alls tapaði Ísland 23 boltum í leiknum í dag.

Svartfjallaland leiddi með 21 stigi, 40-61, fyrir lokaleikhlutann. Ísland spilaði ágætlega í honum en náði aldrei að minnka muninn að neinu ráði. Lokatölur 62-84, Svartfellingum í vil.

Ísland mætir Slóvakíu ytra í næsta leik sínum í undankeppninni á miðvikudaginn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira