Lífið

Draumar eru uppáhaldið mitt

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Aldís með hrafninn Íó og Hafrúnu. Þau eru aðalsöguhetjur í Íó sem sýnd er í Tjarnarbíói og ætluð börnum á grunnskólaaldri.
Aldís með hrafninn Íó og Hafrúnu. Þau eru aðalsöguhetjur í Íó sem sýnd er í Tjarnarbíói og ætluð börnum á grunnskólaaldri. FRÉTTABLAÐIÐ/HANNA
Aldís Gyða Davíðsdóttir er söngkona, brúðugerðarkona, leikkona og textahöfundur. Hvað skyldi vera skemmtilegast?

Það er bara svo dásamlega gaman að skapa og ég er alltaf að uppgötva eitthvað nýtt sem ég get gert. Get ómögulega valið á milli.

Hvað finnst þér heillandi við brúðugerð? Þegar ég held ég sé að fara að búa til einhverskonar brúðu en enda svo með allt öðruvísi brúðu, svolítið eins og brúðurnar hjálpi til með hvernig þær koma út á endanum

En erfiðast? Þegar ég þarf að vinna með eitthvað mjög tæknilegt eins og vængina hjá hrafninum Íó sem ég þurfti að endurgera sex sinnum.

Hafðir þú áhuga á að búa til brúður þegar þú varst lítil? Ég var alltaf að föndra eitthvað þegar ég var lítil og gera ýmiskonar föndur tilraunir. Brúður og önnur listaverk.

Á hverju byrjar þú þegar þú býrð til brúðu? Fyrst finn ég út hvernig tegund af brúðu ég vil gera, stangarbrúðu, strengjabrúðu, handbrúðu, bland af þessu öllu eða eitthvað alveg nýtt.

Býrðu til grímur? Ég er mikil grímukona og hef búið til margar grímur, fólks- og dýragrímur.

Hvaða efni notar þú? Ég vinn mest með pappamassa því hann er svo léttur og þægilegur.

Hefur þú stjórnað brúðum á sýningum? Ég hef stjórnað mörgum brúðum í ennþá fleiri sýningum. Ég var í Brúðubílnum og Leikbrúðulandi fyrst,  svo sett ég sjálf upp brúðu- og grímusýningu fyrir börn sem hét Fiskabúrið, svo brúðusýninguna Tröll síðasta vor og núna Íó sem sýnd er í Tjarnarbíói.

Átt þú börn? Já, ég á tvær stelpur Iðunni þriggja ára og Emblu átta ára.

Hafa draumar þínir ræst? Draumar eru uppáhaldið mitt. Sumir hafa ræst en ég á eftir að læra á básúnu og eiga risa stóran hund og lita hárið á mér blátt og dansa með górillum og eignast ofurhetjuskikkju og milljón aðra drauma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×