Innlent

Rúmur hálfur milljarður í leigu skólabygginga á tveimur árum

Sveinn Arnarsson skrifar
Áslandsskóli auk leikskólanna Tjarnaráss og Hörðuvalla er í eigu félagsins FM húsa.
Áslandsskóli auk leikskólanna Tjarnaráss og Hörðuvalla er í eigu félagsins FM húsa. Vísir/anton brink
Hafnarfjarðarbær greiddi FM húsum ehf. rúmlega 530 milljónir króna árin 2015 og 2016 vegna leigu á skólahúsnæði í eigu fyrirtækisins. Þetta kemur fram í bókhaldi Hafnarfjarðarbæjar sem sveitarfélagið gerði opinbert fyrr á þessu ári. Samningar standa yfir við nýja eigendur FM húsa um breytingar á samningi við Hafnarfjarðarbæ.

Hafnarfjarðarbær opinberaði bókhald sitt á þessu ári fyrir árin 2015 og 2016. Tveir stærstu birgjar sveitarfélagsins eru FM hús sem á fasteignina sem Áslandsskóli er í auk leikskólanna Tjarnaráss og Hörðuvalla. Á þessum tveimur árum greiddi sveitarfélagið samtals 533.391.450 krónur til fyrirtækisins á grunni samnings milli aðila frá árinu 2000.

Haraldur Líndal Haraldsson, bæjarstjóri.Hafnarfjarðar
Húsnæðismál Áslandsskóla hafa oft verið rædd í stjórnkerfi bæjarins. Á fundi bæjarráðs í upphafi árs var málið til umfjöllunar og áréttaði bæjarráð þá bókun sína frá því í desember 2016 þess efnis að bæjarstjóri leiti samninga við fyrirtækið um að Hafnarfjarðarbær leysi til sín þær fasteignir FM húsa sem bundnar eru leigu- og þjónustusamningum við bæinn. Náist ekki samningar þar um rennur samningur við FM hús út árið 2027.

Haraldur Líndal Haraldsson segir bæjarlögmann og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs hafa setið fundi milli bæjarins og FM húsa til að ná samkomulagi um breytingar á samningnum. Sú vinna sé í gangi innan stjórnkerfisins.

Adda María Jóhannsdóttir bæjarfulltrúi
Adda María Jóhannsdóttir, fulltrúi Samfylkingar í minnihluta Hafnarfjarðarbæjar, segir þennan samning afar óhagstæðan fyrir sveitarfélagið og þegar allt sé skoðað hafi bæjarsjóður greitt margfalt verð fyrir byggingu skólans.

„Þetta fyrirkomulag hefur reynst dýrt fyrir Hafnarfjörð og því mikilvægt að leysa til sín húsin og læra af þessu,“ segir Adda María.

Fasteignafélagið Reginn og VíS keyptu um helmingshlut í  FM húsum í lok árs 2016. Þau kaup komu Hafnarfirði í opna skjöldu en með þeim kaupum eignaðist Reginn þrjár skólabyggingar í Hafnarfirði.

Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs, vildi ekki ræða málefnið við Fréttablaðið þegar eftir því var leitað. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×