Formúla 1

Valtteri Bottas á ráspól í Brasilíu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Valtteri Bottas á Mercedes var fljótastur í dag.
Valtteri Bottas á Mercedes var fljótastur í dag. Vísir/Getty
Valtteri Bottas á Mercedes var fljótastur í dag og ræsir fremstur í brasilíska Formúlu 1 kappaksturinn á morgun. Sebastian Vettel á Ferrari varð annar og Kimi Raikkonen á Ferrari var þriðji.

Ráspóll hefur leitt til sigurs í 14 af 34 keppnum sem fram hafa farið á brautinni í Interlagos. Það er því ekki aðalatriði að vera á ráspól, þó það hjálpi auðvitað.

Fyrsta lota

Lewis Hamilton keyrði sig út úr tímatökunni á sínum frysta hring skemmdi bílinn talsvert. Hann missti stjórn á bílnum og hafnaði á varnarvegg. Hann var fljótastur á báðum æfingum gærdagsins og ætlaði sér að á góðum árangri í fyrstu keppninni eftir að hann tryggði sér heimsmeistaratitilinn. Tímatakan var stöðvuð til að hægt væri að fjarlægja bíl heimsmeistarans. Hamilton hafði ekki fallið úr leik í fyrstu lotu síðan í Belgíu 2016.

Hamilton hefur aldrei unnið keppni eftir að hann hefur tryggt sér heimsmeistaratitilinn. Útlitið er ekki gott fyrir morgundaginn hvað varðar viðsnúning þeirrar bölvunar.

Hamilton var þar af leiðandi einn þeirra sem ekki komust áfram í aðra lotu tímatökunnar. Auk hans féllu úr leik: Lance Stroll á Williams, Sauber ökumennirnir og Pierre Gasly á Toro Rosso.

Sebastian Vettel var tímabundið með ráspólinn í vasanum í dag en tapaði svo fyrir Bottas.Vísir/Getty
Önnur lota

Bottas skellti góðum tíma á blað strax í upphafi lotunnar. Hann var þá orðinn hraðastur á brautinni um helgina. Vettel stal senunni undir lok tímatökunnar og setti nýtt brautarmet.

Brendon Hartley setti ekki tíma í annarri lotu. Hann notaði tímann til að æfa ræsingar og þá ferla sem tengist því að koma Formúlu 1 bíl af stað. Hann er að fara að ræsa í þriðja sinn í keppni á morgun.

Daniel Ricciardo á Red Bull þurfti að sætta sig við að taka út refsingu eftir tímatökuna og ók því á mjúkum dekkjum í lotunni. Hann ætlar að vera lengi úti í upphafi keppninnar á morgun og reyna aðra keppnisáætlun en fremstu menn. Ökumenn hefja keppnina á þeim dekkjagangi sem þeir setja hraðasta tímann á í annarri lotu, ef þeir komast í þriðju lotuna.

Hartley, Haas ökumennirnir, Stoffel Vandoorne á McLaren og Esteban Ocon á Force India féllu úr leik í annarri lotu.

Þriðja lota

Vettel var fljótastur í fyrstu tilraun ökumanna í þriðju lotu. Bottas var annar á Mercedes skömmu á eftir Vettel og Raikkonen þriðji. Bottas var svo síðastur yfir línuna í annarri tilraun þeirra félaga og sá eini sem bætti tíma sinn og tryggði sér ráspól í Brasilíu.


Tengdar fréttir

Felipe Massa hættir í Formúlu 1

Felipe Massa ökumaður Williams liðsins hefur tilkynnt að hann ætli að leggja hjálminn á hilluna frægu eftir að tímabilinu í ár lýkur.

Lewis Hamilton fljótastur á föstudegi í Brasilíu

Lewis Hamilton á Mercedes lét fjórða heimsmeistaratitilinn sem hann tryggði sér í síðustu keppni ekki aftra sér og var fljótastur á báðum æfingum dagsins fyrir brasilíska kappaksturinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×