Handbolti

Sjáðu fagnaðarlæti FH-inga eftir að Ísak skoraði | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Glaðir og reifir FH-ingar eftir vítakeppnina.
Glaðir og reifir FH-ingar eftir vítakeppnina. mynd/facebook-síða fh
Sem kunnugt er hafði FH betur gegn St. Pétursborg í vítakastkeppni ytra í morgun.



Ísak Rafnsson tryggði sigur FH er hann skoraði úr síðasta víti liðsins. Þessi mikli FH-ingur sýndi stáltaugar á vítalínunni og skoraði af öryggi.

Eftir að Ísak skoraði braust eðlilega út mikill fögnuður hjá FH-ingum sem eru komnir áfram í 3. umferð EHF-bikarsins þar sem þeir mæta Tatran Presov frá Slóvakíu.

Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá vítið sem Ísak tók og fögnuð FH-inga í kjölfarið.


Tengdar fréttir

Halldór: Hafði trú á markmönnunum okkar

Halldór Sigfússon, þjálfari FH, var að vonum ánægður eftir sigur Fimleikafélagsins á St. Pétursborg í umdeildri vítakastkeppni í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×