Fótbolti

Ronaldo eignaðist sitt fjórða barn í kvöld

Ingvar Þór Björnsson skrifar
Cristiano Ronaldo spilar með Real Madrid í spænsku deildinni.
Cristiano Ronaldo spilar með Real Madrid í spænsku deildinni. Vísir/Getty
Knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo eignaðist sitt fjórða barn í kvöld þegar kærasta hans, Georgina Rodriguez, fæddi barn þeirra á spítala í Madríd.

Ákveðið var að flýta fæðingunni sökum þess að Ronaldo spilar ekki leik aftur fyrr en um næstu helgi. Ronaldo varð fyrsti pabbi árið 2010 þegar Christiano Ronaldi Jr. kom í heiminn. Knattspyrnumaðurinn eignaðist einnig tvíbura í sumar.

A Alana Martina acaba de nascer! Tanto a Geo como a Alana estão muito bem! Estamos todos muito felizes! ❤️

A post shared by Cristiano Ronaldo (@cristiano) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×