Golf

Valdís Þóra þarf að gefa í

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Valdís Þóra varð Íslandsmeistari í golfi í sumar.
Valdís Þóra varð Íslandsmeistari í golfi í sumar. vísir/andri marinó
Valdís Þóra Jónsdóttir endaði í 49.-51. sæti á Hero-mótinu á Indlandi um helgina. Mótið er hluti af LET, Evrópumótaröðinni í golfi.

Valdís lék samtals á fimm höggum yfir pari. Hún fékk tæplega 200.000 krónur fyrir frammistöðu sína á mótinu.

Valdís, sem er ríkjandi Íslandsmeistari í golfi, er í 113. sæti á stigalista LET-mótaraðarinnar eftir mótið um helgina.

Skagakonan þarf að gefa í ef hún ætlar að halda keppnisrétti sínum á LET-mótaröðinni. Áttatíu efstu á stigalistanum fá endurnýjaðan keppnisrétt á mótaröðinni.

Næsta mót Valdísar er Sanya Ladies Open í Kína sem fer fram 17.-19. nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×