Lífið

Sjáðu sigurlagið: Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar Kór Íslands var krýndur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps fagnar sigrinum í gær.
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps fagnar sigrinum í gær. Vísir/Daníel Þór Ágústsson
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps stóð uppi sem sigurvegari í sjónvarpsþættinum Kórar Íslands í gærkvöldi. Lokaþátturinn var sýndur á Stöð 2 í beinni útsendingu í gær og hlaut kórinn fjórar milljónir króna í sigurlaun.

Karlakór Bólstaðarhlíðarhreppssigraði í símakosningu þar sem rúmlega 40 þúsund atkvæði voru greidd.

Kórarnir sem kepptu til sigurs voru Vox, Felix, Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps, Gospelkór Jón Vídalíns, Spectrum, Kór Lindakirkju og Karlakórinn Esja.

Hér má sjá myndbrot úr þættinum í gær þegar úrslitin voru kynnt og sigurlagið flutt.

Kórar Íslands er skemmtiþáttur sem var á dagskrá Stöðvar 2 í fyrsta skipti í vetur en Friðrik Dór Jónsson, einn ástsælasti söngvari landsins, var kynnir þáttanna. Dómnefndina skipuðu tónlistarfólkið Kristjana Stefánsdóttir, Ari Bragi Kárason, og Bryndís Jakobsdóttir.

Hér að neðan má sjá myndasafn frá gærkvöldinu sem ljósmyndarinn Daníel Þór fangaði. Hægt er að fletta safninu til að sjá fleiri myndir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×