Viðskipti innlent

Arion banki færir niður lán til United Silicon um 3,7 milljarða

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Afkomutilkynning Arion banka á fyrstu níu mánuðum ársins var gefin út í kvöld.
Afkomutilkynning Arion banka á fyrstu níu mánuðum ársins var gefin út í kvöld. Vísir/Pjetur
Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi ársins 2017 var neikvæð um 100 milljónir króna. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu bankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 sem birt var nú í kvöld.

Á sama tíma í fyrra var hagnaðurinn 7,5 milljarðar króna. Þetta er tilkomið vegna niðurfærslu á lánum, kröfum og öðrum eignum sem tengjast kísilmálmverksmiðjunni United Silicon. Þær nema alls 3,7 milljörðum á fjórðungnum og 4,8 milljörðum á fyrstu níu mánuðum ársins. Afkoman hefði verið jákvæð um 2,6 milljarða á þriðja fjórðungi hefði ekki komið til þessara niðurfærslna.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir í tilkynningunni að afkoman sé í takti við væntingar. „Afkoma fyrstu níu mánaða ársins er í takt við væntingar en verulegir einskiptisliðir koma bæði til hækkunar og lækkunar. Grunnreksturinn er fremur stöðugur og vaxta- og þóknanatekjur nálægt okkar væntingum. Fjárhagsstaða bankans er áfram sterk og eiginfjárhlutfall er 27,1%. Afkoman markast hins vegar talsvert af neikvæðum áhrifum tengdum lánveitingum til United Silicon og hlutabréfaeign í félaginu.“

Höskuldur segir einnig að draga þurfi lærdóm af málinu. „Málið átti sér langan aðdraganda og fyrir lágu öll leyfi og samningar um uppbyggingu verksmiðjunnar, orkukaup, helstu aðföng og sölu afurða. Engu að síður er ljóst að draga þarf lærdóm af því hvernig til hefur tekist og það munum við gera. Áfram verður unnið að því að koma starfsemi verksmiðjunnar í gott horf í sátt við samfélagið.“

Auk þess er hagnaður bankans á fyrstu níu mánuðum ársins 10,4 milljarðar króna, samanborið við 17,3 milljarða á sama tíma í fyrra. Arðsemi eigin fjár var 6,3% en 11,2% á sama tíma árið 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×