Erlent

Slíta tengsl sín við Moore

Samúel Karl Ólason skrifar
Roy Moore.
Roy Moore. Vísir/Getty
Landsnefnd Repúblikanaflokksins ætlar að tengsl sín við Roy Moore, frambjóðenda flokksins til öldungadeildasætis Alabama. Moore, sem hefur verið sakaður um að hafa brotið kynferðislega á táningsstúlkum á árum áður, mun því ekki hafa aðgang að fjármunum frá landsnefndinni. Þar að auki mun flokkurinn ekki hjálpa Moore við atkvæðaöflun.

Moore hefur einangrast verulega eftir að ásakanirnar voru settar fram en kosningarnar í Alabama munu fara fram þann tólfta desember og of seint er að taka Moore af kjörseðlinum. Repúblikanar hafa verið að kanna aðra möguleika eins og að hvetja kjósendur flokksins til að skrifa inn nafn annars frambjóðanda.

Samkvæmt frétt Politico hafa öldungadeildarþingmenn einnig verið að velta upp þeim möguleika að kjósa um að reka Moore frá þinginu nái hann kjöri.



Sjá einnig: „Þú ert bara krakki og ég er saksóknari“



Sjálfur segir Moore að ásakanirnar gegn honum séu nornaveiðar og drifnar áfram af pólitískum andstæðingum sínum.

Repúblikanar hafa þó hingað til verið ragir við að klippa alfarið á tengslin við Moore, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar, af ótta við fæla dygga stuðningsmenn hans frá flokknum og af ótta við að demókratinn Doug Jones verði kosinn á þing. Repúblikanar stjórna öldungadeildinni með 52 þingmenn gegn 48 og ljóst er að það yrði mikið högg fyrir flokkinn að missa eitt sæti til viðbótar.



Jones hefur mælst með meiri stuðning en Moore eftir að ásakanirnar gegn honum litu dagsins ljós. Þar að auki er ljóst að ákvörðun Landsnefndar Repúblikanaflokksins muni gera honum mun erfiðara að ná kjöri.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×