Viðskipti innlent

Óbreyttir stýrivextir Seðlabanka Íslands

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Már Guðmundsson er seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson er seðlabankastjóri. vísir/anton brink
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttir og verða því meginvextir bankans, það er vextir bankans á sjö daga bundnum innlánum, áfram 4,25 prósent.

Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að samkvæmt nýrri þjóðhagsspá bankans sem birt er í nóvemberhefti Peningamála hægir töluvert á hagvexti í ár og meira en bankinn hafði áður spáð í ágúst síðastliðnum.

„Spáð er 3,7% hagvexti í ár en í fyrra var hann 7,4%. Fer þar saman hægari vöxtur útflutnings, eftir hraðan vöxt undanfarin ár, um leið og nokkuð bætir í vöxt innflutnings.

Horfur eru á að verðbólga fari í markmið um mitt næsta ár og verði þar út spátímann. Dregið hefur úr verðhækkunum á húsnæðismarkaði en það mun stuðla að minni verðbólgu haldi þróunin áfram en á móti fjara áhrif hærra gengis út. Frá síðasta fundi peningastefnunefndar hefur gengi krónunnar hækkað. Þá hefur gengisflökt minnkað síðustu mánuði. Verðbólguvæntingar eru í ágætu samræmi við verðbólgumarkmiðið og virðast gengissveiflur á árinu hafa haft tiltölulega lítil áhrif á verðbólgu og verðbólguvæntingar,“ segir í tilkynningu bankans.

Þá kemur þar jafnframt fram að vísbendingar séu um að spennan í þjóðarbúskapnum kunni nú að hafa náð hámarki. Hún verði þó áfram þó nokkur og kallar það á peningalegt aðhald svo unnt sé að tryggja verðstöðugleika til meðallangs tíma.

„Minni spenna og betri verðbólguhorfur eru í samræmi við það sem peningastefnunefndin gerði ráð fyrir í október og raunvextir bankans eru svipaðir og þeir voru eftir ákvörðunina þá. Núverandi aðhald peningastefnunnar virðist að svo stöddu duga til þess að verðbólga verði að jafnaði við markmið. Hvort það reynist rétt mun á komandi misserum ráðast af framvindu efnahagsmála, þ.m.t. stefnunni í opinberum fjármálum og niðurstöðu kjarasamninga.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×