Lífið

Sautján ára á flugi: Benji stórkostlegur með frumsamið lag um EastEnders

Stefán Árni Pálsson skrifar
Benji Matthews er að fara á kostum í X-Factor UK.
Benji Matthews er að fara á kostum í X-Factor UK.
Hinn 17 ára Benji Matthews er að slá rækilega í gegn í raunveruleikaþáttunum X-Factor. Matthews er með skemmtilegan og öðruvísi stíl og virðist hann hitta beint í mark.

Á dögunum flutti hann frumsamið lag fyrir framan fjögur þúsund manns og ber lagið nafnið Sweet, en Benji fékk innblástur frá bresku sápuóperunni EastEnders.

Flutningurinn var dómurunum að skapi og flaug söngvarinn áfram í þáttunum en hér að neðan má sjá umrætt atriði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×