Viðskipti innlent

Telur líklegt að WOW air horfi til Indlands

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Skúli Mogensen, forstjóri WOW Air.
Skúli Mogensen, forstjóri WOW Air. Vísir/Vilhelm
Líklegt er að WOW air stefni á að hefja áætlunarflug til Indlands árið 2019 að mati flugblaðamanns bandaríska viðskiptatímaritsins Forbes. Fyrir liggur að íslenska flugfélagið stefnir á að hefja beint flug til Asíu á næsta ári.

Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, hefur þó lítið sem ekkert vilja segja hvaða áfangastaðir verði fyrir valinu þegar kemur að Asíu. Í viðtali við Forbes segir hann að flugfélagið sé með „talsvert úrval áfangastaða“ til skoðunar og „sumir áfangastaðir henti betur en aðrir“.

Í umfjöllun Forbes segir að ekki sé erfitt að ímynda sér hvaða áfangastað WoW air hafi helst í huga þegar kemur að Asíuflugi. Bandaríkin og Indland eru meðal stærstu flugmarkaða heims og því komi það ekki á óvart vilji WOW air tengja þessa markaði saman.

Milljónir Indverja búi í Bandaríkjunum auk þess sem að töluverður ferðamannastraumur er á milli þessara landa. Þá séu fáir valkostir í boði þegar kemur að flugi á milli Indlands og Bandaríkjanna en nokkur flugfélög fljúga beint frá austurströnd Bandaríkjanna til Indlands.

Í frétt Forbes segir að þó að eflaust henti það ekki öllum að stoppa á Íslandi á leið sinni til eða frá Indlandi en ljóst sé að flugfargjöld WOW air muni freista margra. Þá geti WOW air boðið upp á flug til Indlands frá alls ellefu stöðum í Bandaríkjunum, allt í gegnum Ísland. Til samanburðar býður Air India upp á bein flug frá aðeins þremur borgum á austurströnd Bandaríkjanna.

Þá segir Skúli að flugfélagið sé einnig að skoða hvernig Finnair hafi tekist að gera flugvöllinn í Helsinki að tengimiðstöð fyrir flug til Japan, Suður-Kóreu og Kína, með það fyrir augum að gera það sama á Keflavíkurflugvelli.

Skúli hefur áður minnst á mikilvægi þess að gera Keflavíkurflugvöll að stórum alþjóðlegum tengiflugvelli sem geti tryggt stöðugleikann í ferðamannastraumnum til og frá Íslandi og komið í veg fyrir skyndilegt hrun sökum þess að einn markaður bregðist.

Þá er hann vongóður um að takist WOW air að tengja saman Evrópu, Norður-Ameríu og Asíu séu bjartir tímar framundan hjá félaginu.

„Það verður mjög erfitt að herma eftir okkur takist okkur að tengja saman þessar þrjár heimsálfur. Það er frábært sóknarfæri sem við munum sækja að af krafti á næsta ári“


Tengdar fréttir

Áform WOW air valda titringi á hlutabréfamarkaði

Hlutabréf í bandarísku flugfélögunum Delta, American Airlines og United Airlines féll í verði eftir að WOW air tilkynnti á miðvikudag að félagið hefði bætt við fjórum nýjum áfangastöðum í Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×