Handbolti

Enn einn stórsigurinn hjá Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aron skoraði þrjú mörk í kvöld.
Aron skoraði þrjú mörk í kvöld. mynd/barcelona
Barcelona er sem fyrr búið að vinna alla leiki sína í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta og sá tíundi í röð í vetur kom í kvöld.

Þá vann Barcelona stórsigur, 25-34, á Bidasoa sem er í tólfta sæti deildarinnar.

Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk í fimm skotum fyrir Barcelona í kvöld. Pólski línumaðurinn Kamil Syprzak var markahæstur í liði Barca í kvöld með sjö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×