Handbolti

PSG of sterkt fyrir Íslendingalið Cesson-Rennes

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Geir Guðmundsson.
Geir Guðmundsson. vísir/getty
Frakklandsmeistarar PSG unnu sannfærandi sjö marka sigur, 32-25, á Cesson-Rennes í franska boltanum í kvöld.

Geir Guðmundsson tók tvö skot að marki fyrir Cesson-Rennes í kvöld en hvorugt þeirra endaði í netinu. Guðmundur Hólmar Helgason lék ekki með liðinu vegna meiðsla.

Nikola Karabatic var markahæstur í liði PSG í kvöld með sex mörk. Uwe Gensheimer skoraði fimm. Rodrigo Corrales varði 20 skot í marki meistaranna.

PSG er í þriðja sæti deildarinnar en Cesson-Rennes því næstneðsta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×