Innlent

Dimm él og hvassviðri

Stefán Ó. Jónsson skrifar
VÍSIR/ERNIR
Veðurstofan gerir ráð fyrir éljagangi um vestanvert landið í dag. Þá verður vestlæg átt, 10 til 15 m/s við ströndian en 5 til 10 m/s í uppsveitum sunnan- og vestanlands. Þá verða gular viðvaranir í gildi fyrir þrjú svæði á Austurlandi á morgun.

Einnig telur Veðurstofan einhverjar líkur á stökum „dimmum éljum“ vestanlands og að þar gæti vindur farið upp í 18 m/s.

Það styttir upp á annesjum norðaustanlands með morgninum og þá verður „svo gott sem“ úrkomulaust á austurhelmingi landsins. Vestan 8 til 15 m/s fyrir austan og sumstaðar hvassari og byljóttari vindur við fjöll á austan Öræfa og á sunnanverðum Austfjörðum. Það mun þó draga úr vindi á þeim slóðum upp úr hádegi.

Sjá einnig: Vegfarendur sýni aðgát á Suðausturlandi

Það muni þó hvessa aftur í nótt á Austur- og Suðausturlandi. Af þeim sökum verður gul viðvörun í gildi fyrir þrjú landsvæði á morgun, eins og Vísir greindi frá í gær. Vestan og norðvestan 15 til 23 m/s austanlands og él eða snjókoma norðatil á morgun en mun hægari vindur suðvestanlands og áfram éljagangur.

Hiti við frostmark við sjávarsíðuna en frost inn til landsins.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:

Norðvestan 8-15 m/s, en 15-23 austanlands. Él eða snjókoma á Norður- og Austurlandi og stöku él með vesturströndinni, en bjartviðri sunnanlands. Hiti um frostmark við sjávarsíðuna, en vægt frost til landins. 

Á laugardag:

Norðlæg eða breytileg átt 3-8, en norðan 8-13 austast á landinu. Él eða snjókoma við ströndina norðan- og austanlands, en léttskýjað sunnan heiða. Frost 0 til 8 stig, mest inn til landsins. 

Á sunnudag:

Norðaustan- og austanátt, víða á bilinu 5-10 m/s. Lítilsháttar él með norður- og austurströndinni, en þurrt og bjart sunnan- og vestantil. Áfram fremur kalt í veðri. 

Á mánudag:

Norðaustan 5-10 og stöku él við sjávarsíðuna norðanlands en austan 10-18, hvassast allra syðst, og snjókoma sunnantil. Hiti nálægt frostmarki en frost 2 til 7 stig fyrir norðan. 

Á þriðjudag:

Útlit fyrir ákveðna norðan- og norðaustanátt með snjókomu víða um land en úrkomulítið á Vesturlandi. Hiti nálægt frostmarki. 

Á miðvikudag:

Líkur á norðaustan hvassviðri eða storm og snjókomu en úrkomulítið á Suðurlandi. Hiti um og undir frostmarki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×