Fótbolti

Andri Rúnar er fyrsti 19 marka maðurinn sem fær ekki tækifæri með landsliðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andri Rúnar Bjarnason með gullskó Adidas.
Andri Rúnar Bjarnason með gullskó Adidas. Mynd/Adidas
Andri Rúnar Bjarnason jafnaði markametið í efstu deild á Ísland með því að skora 19 mörk fyrir Grindavík í sumar.

Hann varð þar með fimmti meðlimurinn í 19 marka klúbbnum en þar voru áður þeir Pétur Pétursson, Guðmundur Torfason, Þórður Guðjónsson og Tryggvi Guðmundsson.

Líkt og með hina fjóra þá er Andri Rúnar kominn út í atvinnumennsku en hann mun spila með sænska liðinu Helsingborgs IF á næsta ári.

Pétur fór til hollenska liðsins Feyenoord, Guðmundur Torfason fór til belgíska félagsins Beveren, Þórður Guðjónsson samdi við þýska liðið  Bochum og Tryggvi Guðmundsson gerðist leikmaður norska félagsins Tromsö.

Það sem Andri Rúnar á hinsvegar ekki sameiginlegt með hinum fjórum er að fá tækifæri með íslenska A-landsliðinu.

Sjá einnig:Hjörvari fannst Diego og Rúnar slakir og vill sjá Andra og Albert fá tækifæri

Allir hinir fjórir fengu að spila með landsliðinu haustið sem þeir settu eða jöfnuðu markametið.

Pétur, Þórður og Tryggvi spiluðu allir fyrsta A-landsleikinn sinn þetta sama ár en Guðmundur hafði spilað sinn fyrsta A-landsleik árið á undan.

Guðmundur er líka sá af þeim sem fékk fæstar mínútur þetta haust en hann kom inná sem varamaður í einum leik og spilaði þá í 11 mínútur. Hann hafði hinsvegar spilað tvo landsleiki fyrr á árinu (1986).

Pétur Pétursson spilaði allar mínútur í boði haustið sem hann setti markametið (1978) og bæði Þórður Guðjónsson (1993) og Tryggvi Guðmundsson (1997) voru komnir í stór hlutverk með landsliðinu.

Hér fyrir neðan má sjá landsliðstölfræði 19 marka mannanna fimm á metárinu.



19 marka mennirnir og tækifærin með landsliðinu

Pétur Pétursson skoraði 19 mörk fyrir ÍA sumarið 1978

- 5 landsleikir og 1 mark 1978

- 360 landsliðsmínútur í september, október eða nóvember

Guðmundur Torfason skoraði 19 mörk fyrir Fram sumarið 1986

- 3 landsleikir og 0 mörk 1986

- 11 landsliðsmínútur í september, október eða nóvember

Þórður Guðjónsson skoraði 19 mörk fyrir ÍA sumarið 1993

- 2 landsleikir og 0 mörk 1993

- 172 landsliðsmínútur í september, október eða nóvember

Tryggvi Guðmundsson skoraði 19 mörk fyrir ÍBV sumarið 1997

- 6 landsleikir og 3 mörk 1997

- 204 landsliðsmínútur í september, október eða nóvember

Andri Rúnar Bjarnason skoraði 19 mörk fyrir Grindavík sumarið 2017

- 0 landsleikir

- 0 landsliðsmínútur í september, október eða nóvember




Fleiri fréttir

Sjá meira


×