Enski boltinn

Ofurumboðsmaðurinn ætlar að næla í Alli

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dele Alli fagnar marki.
Dele Alli fagnar marki. vísir/getty
Stjörnuumboðsmaðurinn Jorge Mendes ætlar að klófesta Dele Alli, leikmann Tottenham og enska landsliðsins. Sky Sports greinir.

Búist er við því að hinn 21 árs gamli Alli skipti um umboðsmann á næsta ári er samningur hans við Rob Segal og Impact Sport rennur út.

Fjölmargar umboðsskrifstofur hafa áhuga á Alli en búist er við því að hann endi hjá Mendes og hans liði.

Samningur Allis við Tottenham rennur út árið 2020 en viðræður um nýjan samning eru hafnar.

Alli er með um 50.000 pund í vikulaun hjá Tottenham en talið er að hann geti fengið allt að 200.000 pund í vikulaun annars staðar. Miðjumaðurinn marksækni hefur m.a. verið orðaður við Real Madrid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×