Viðskipti innlent

Íslandsbanki gefur út víkjandi skuldabréf að fjárhæð 750 milljónir sænskra króna

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Skuldabréfið er að fjárhæð 750 milljónir sænskra króna.
Skuldabréfið er að fjárhæð 750 milljónir sænskra króna. Vísir/Anton Brink
Íslandsbanki hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 750 milljónir sænskra króna, jafnvirði 9,3 milljarða íslenskra króna, til tíu ára. Skuldabréfið, sem er víkjandi og telur til eiginfjárþáttar 2, ber fljótandi vexti 200 punkta ofan á þriggja mánaða millibankavexti í sænskum krónum. 

Útgáfan er fyrsta víkjandi skuldabréfaútgáfa sem íslensk fjármálastofnun selur á erlendum markaði frá árinu 2008. Með útgáfunni er stigið stórt skref í átt að hagstæðari fjármagnsskipan á skuldahlið bankans, að því er fram kemur í tilkynningu frá Íslandsbanka.

Útgáfan fær lánshæfismatseinkunnina BBB- frá S&P Global Ratings sem er einkunn í fjárfestingaflokki. Mikil eftirspurn var eftir útgáfunni sem var seld til fjölbreytts hóps fagfjárfesta frá Norðurlöndunum og meginlandi Evrópu.

„Við hjá Íslandsbanka erum afar ánægð með útgáfuna og þann mikla áhuga sem við fundum hjá fjárfestum. Margir þessara fjárfesta hafa notið góðs af því að hafa keypt hefðbundin skuldabréf af bankanum á liðnum árum og þátttaka þeirra í útgáfunni sýnir áframhaldandi trú á honum sem útgefanda og á íslenska hagkerfinu,“ segir Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri Íslandsbanka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×