Handbolti

Kári Kristján laug engu þegar að hann sagðist vera frábær | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
„Ég skil ekki af hverju hann skilur ekki að þeir hafi lent í vandræðum með mig. Ég var bara frábær,“ sagði Eyjamaðurinn Kári Kristján Kristjánsson um ummæli Halldórs Jóhanns Sigfússonar, þjálfara FH, eftir sigur ÍBV í stórleik níundu umferðar Olís-deildar karla í Kaplakrika í gærkvöldi.

Kári Kristján minnti heldur betur á sig með tíu mörkum úr ellefu skotum og fjórum fiskuðum vítum en landsliðsmaðurinn lék sér að miðjublokk FH-liðsins sem hefur hingað til verið sú besta í deildinni. Hann gerði hreinlega grín að þeim sem reyndu að standa í vegi fyrir honum.

Kári datt úr landsliðshópnum á þessu ári en nú er Evrópumót handan við hornið í Króatíu í byrjun næsta árs. Línumaðurinn sér varla annað í stöðunni en að hann fari með.

„Já, ég er aðal og þá hlýt ég að fara á stórmót, er það ekki? Geiri [Geir Sveinsson] hringir örugglega í mig og vill spjalla um þetta,“ sagði hinn afar létti Kári Kristján að lokum.

Frammistöðu Kára Kristjáns má sjá í spilaranum hér að ofan en hér að neðan má sjá það helsta úr leiknum af Facebook-síðu Seinni bylgjunnar.


Tengdar fréttir

Kári: Ég var frábær

Kári Kristján Kristjánsson átti frábæran leik fyrir ÍBV í 33-34 sigri gegn FH í kvöld. Kári skoraði tíu mörk og fiskaði ótal vítaköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×