Viðskipti innlent

Töldu Kára fyrirgera rétti sínum á launuðum uppsagnarfresti

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Kári Arnór var framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs.
Kári Arnór var framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs. Vísir
Stjórn lífeyrissjóðsins Stapa segir niðurstöðu Héraðsdóms Norðurlands eystra vonbrigði í máli Kára Arnórs Kárasonar gegn lífeyrissjóðnum. Stapi hefur verið dæmdur til að greiða Kára Arnóri, fyrrverandi framkvæmdastjóra sjóðsins, tæplega 24 milljónir króna vegna vangoldinna launa við starfslok hans.

Kári Arnór sagði upp störfum vorið 2016 í kjölfar þess að nafn hans birtist í Panamaskjölunum. Í tilkynningu frá stjórn Stapa segir að samskipti Kára Arnórs og stjórnar lífeyrissjóðsins á þeim tíma hafi gefið tilefni til mismunandi túlkunar á eðli starfslokanna.

Stjórnin taldi að með yfirlýsingu sinni á vef sjóðsins um starfslok sín hafi Kári látið fyrirvaralaust af starfi og þar með hafi hann fyrirgert rétti sínum til launa á uppsagnarfresti.

„Skiptir þá engu máli þótt langt sé um liðið, hvort þetta var löglegt eða ólöglegt eða hvort viðkomandi hafi hagnast á slíkum viðskiptum eða ekki. Í ljósi þessa hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs. Það er að mínu mati eina leiðin sem mér er fær til að axla ábyrgð, enda tengist vinnuveitandi minn ekki á neinn hátt þessum málum,“ sagði Kári meðal annars í yfirlýsingu á vef sjóðsins á sínum tíma.

Sjá einnig: Kári Arnór fær 24 milljónir í bætur frá Stapa

„Stjórnin leitaði þess vegna eftir áliti þriggja lögmannsstofa á sínum tíma og álit þeirra voru öll á eina lund og gagnstæð niðurstöðu dómsins,“ segir í tilkynningu.

„Í ljósi þess taldi stjórnin sér ekki stætt að greiða fyrrverandi framkvæmdastjóra laun á uppsagnarfresti án dómsniðurstöðu í málinu. Dómari héraðsdóms var ekki á sama máli og dæmdi framkvæmdastjóra rétt til launa á uppsagnarfresti.“

Stjórnin segist harma það tjón sem málið valdi sjóðsfélögum. Farið verði yfir dóminn í heild og kannað hvort möguleikar eru til áfrýjunar.


Tengdar fréttir

Hætti vegna Panamaskjala en vill laun

Kári Arnór Kárason, fyrrverandi framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs hefur stefnt sjóðnum vegna vangoldinna launa við starfslok hans.

Kári Arnór fær 24 milljónir í bætur frá Stapa

Lífeyrissjóðurinn Stapi hefur verið dæmdur til að greiða fyrrverandi framkvæmdastjóra sjóðsins tæplega 24 milljónir króna vegna vangoldinna launa við starfslok hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×