Skoðun

Upplýsingaveita fyrir stærstu atvinnugreinina

Barnheiður Hallsdóttir skrifar
Upplýsingaskortur getur verið afdrifaríkur þegar teknar eru stórar ákvarðanir. Það á við bæði í rekstri fyrirtækja og ekki síður í rekstri ríkis og sveitarfélaga. Tiltækar upplýsingar sem varða ferðaþjónustu hafa ekki legið á lausu hingað til. Þær hafa verið óaðgengilegar, vistaðar hér og þar og oft ekki verið nema fyrir sérfræðinga að finna þær og vinna úr þeim.

Mælaborð ferðaþjónustunnar er ný vefsíða á vegum Stjórnstöðvar ferðamála sem á eftir að breyta miklu fyrir alla þá sem starfa við ferðaþjónustu eða annað henni tengt. Í Mælaborðinu er í fyrsta skipti hægt að nálgast tölulegar upplýsingar um ferðaþjónustuna á einum stað. Tölurnar í Mælaborðinu eru settar fram með myndrænum hætti, sem gerir notendum auðveldara fyrir að átta sig á þróuninni og spá í framtíðina.

Yfirsýn sem auðveldar ákvarðanatöku

Vöxtur og þróun ferðaþjónustunnar hefur verið með ólíkindum eins og allir vita. Fyrirtækin hafa verið á hlaupum að bregðast við, fjárfesta, þróa, ráða starfsfólk, breyta og bæta. Erfitt hefur verið að ná yfirsýn yfir þær fjölmörgu breytur sem gefa til kynna hvert stefnir. Í mörgum tilfellum hafa fyrirtækin því þurft að stökkva út í djúpu laugina með allt of mikið af óþekktum stærðum í farteskinu og vona það besta. Með því að hafa sem mest af upplýsingum aðgengilegt á einum stað verður hægt að gera markvissari áætlanir en áður og stuðla að skynsamlegri nýtingu framleiðsluþátta ferðaþjónustunnar og gera markaðs- og aðgerðaáætlanir lengra fram í tímann.

Ferðaþjónusta teygir anga sína víða

Ferðaþjónustan hefur töluverða sérstöðu sem atvinnugrein vegna þess hvað hún snertir marga anga þjóðfélagsins. Í ferðaþjónustu starfa um 28 þúsund manns. Auk þess byggir gríðarlegur fjöldi einstaklinga og fyrirtækja afkomu sína óbeint á ferðaþjónustu. Breyturnar eru ótal margar og viðsnúningur til hins betra eða verra á einum stað getur haft mikil áhrif á fjölda annarra. Það er því mikilvægt fyrir fleiri en þá sem reka ferðaþjónustufyrirtæki að vera með á nótunum.

Upplýsingar úr öllum áttum

Meðal þess sem mælaborðið sýnir til að byrja með er fjöldi ferðamanna, framboð gistirýmis, nýting hótel­herbergja, nýting og tekjur Airbnb gistingar, komur og dreifing skemmtiferðaskipa, fjöldi starfsmanna í atvinnugreininni, gjaldeyristekjur og fjöldi bílaleigubíla. Þessar tölur má skoða nánar eftir árum, landsvæðum, sveitarfélögum, atvinnugreinum, þjóðernum o.fl. Á næstu misserum er áætlað að bæta við miklu meira af upplýsingum. Sem dæmi má nefna farþegaupplýsingar, viðhorfskannanir meðal ferðamanna og heimamanna og landamærakannanir.

Allir hafa sama aðgang

Stór kostur Mælaborðsins er að allir hafa sama aðgang að upplýsingunum. Lítil og stór fyrirtæki, bankar og lánastofnanir, rannsakendur og ráðgjafar, skólar og námsmenn, ríki og sveitarfélög. Mælaborðið gefur fyrirheit um að komin sé góð hreyfing á það ákall frá ferðaþjónustunni að samræma og bæta aðgengi að upplýsingum. Gott aðgengi að upplýsingum er öllum í hag og er það von okkar sem störfum í greininni að upplýsingaveitan gefi frekari rannsóknum, könnunum og upplýsingaöflun byr undir báða vængi.

Höfundur er framkvæmdastjóri Kötlu DMI ehf. og Viator




Skoðun

Sjá meira


×