Handbolti

Fjölnir valtaði yfir Selfoss

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðrún Jenný var mjög öflug í kvöld.
Guðrún Jenný var mjög öflug í kvöld. vísir/anton
Fjölnisstúlkur komu skemmtilega á óvart í kvöld er þær pökkuðu Selfyssingum saman og það á Selfossi.

Lokatölur 25-36 efti að staðan í leikhléi hafði verið 8-16. Ballið í raun búið strax í hálfleik.

Andrea Jacobsen og Guðrún Jenný Sigurðardóttir skoruðu báðar sex mörk fyrir Fjölni. Kristrún Steinþórsdóttir yfirburðamanneskja í liði Selfoss með níu mörk í kvöld.

Fjölnir er enn í næstneðsta sæti Olís-deildar kvenna með fjögur stig en er núna aðeins stigi á eftir Selfyssingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×