Fótbolti

Ronaldo: Vil sjö börn og sjö Gullbolta

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ronaldo og litli Ronaldo stilla sér upp með Gullboltann, sem veittur er besta leikmanni heims.
Ronaldo og litli Ronaldo stilla sér upp með Gullboltann, sem veittur er besta leikmanni heims. vísir/getty
Cristiano Ronaldo spilar sem kunnugt er í treyju númer sjö, bæði hjá Real Madrid og portúgalska landsliðinu. Hann vill líka eignast sjö börn og vinna sjö Gullbolta.

Ronaldo þykir líklegastur til að vinna Gullboltann í næsta mánuði. Hann hefur fjórum sinnum unnið hann áður, síðast í fyrra.

Ronaldo varð líka pabbi í fjórða sinn í vikunni þegar Georgina Rodríguez ól honum dóttur.

„Ég vil eignast sjö börn og jafn marga Gullbolta. Meðan ég spila hef ég metnað til að vinna allt,“ sagði Ronaldo í samtali við L'Equipe.

Ronaldo hefur farið rólega af stað í spænsku úrvalsdeildinni og er aðeins kominn með eitt mark þar.

Hann fær tækifæri til að bæta úr því þegar Real Madrid mætir Atlético Madrid í borgarslag á morgun.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×