Enski boltinn

Mambo er loksins númer fimm

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
"Mambo No. 5“ er langstærsti smellur Lou Bega.
"Mambo No. 5“ er langstærsti smellur Lou Bega. vísir/getty
Enska utandeildarliðið Ebbsfleet United komst í fréttirnar í vikunni eftir að einn stuðningsmaður þess benti að það væri að láta gott gríntækifæri sér úr greipum ganga.

Stuðningsmaðurinn vakti athygli á því að varnarmaðurinn Yado Mambo væri númer 18 en ekki fimm, og vísaði þar í smellinn „Mambo No. 5“ með Lou Bega frá árinu 1999.

Fyrirliði Ebbsfleet er númer fimm og var ekki tilbúinn að láta það númer af hendi.

Ebbsfleet framleiddi þó eina treyju með nafni Mambo og númerinu fimm. Hún verður boðinn upp og ágóðinn fer allur í gott málefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×