Tónlist

Dýrin hafa myndað meirihluta og funda í Alþingishúsinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtilegt myndband frá Jane Telephonda.
Skemmtilegt myndband frá Jane Telephonda.
Hvergi í stjórnarskrá eða kosningalögum segir að skilyrði fyrir kjörgengi til Alþingis sé að vera mannvera. Hljómsveitin Jane Telephonda tók sig því til, setti upp kjörklefa í fjárhúsum, fjósum, hesthúsum og hænsnakofum víðs vegar um land og efndi til kjörfundar málleysingja. Niðurstöðuna má sjá í meðfylgjandi tónlistarmyndbandi frá setningu Alþingis.

Að athöfn í Dómkirkjunni lokinni leiddu æðstuprestarnir hina nýkjörnu fulltrúa þjóðarinnar inn í Alþingishúsið, þar sem við tóku óhefðbundnar umræður í fundarherbergi viðbyggingarinnar.

Fyrsta mál á dagskrá var einmanaleiki einhyrningsins, sem vissi ekki sitt rjúkandi ráð í ástarmálum. Hófst þá ævintýraferð, þar sem hersingin þrammaði niður í Laugardal, í leit að hamingjunni fyrir einhyrnda vin sinn.

Hljómsveitin Jane Telephonda er hugarfóstur Ívars Páls Jónssonar, en hann er þekktastur fyrir konseptplötuna Revolution in the Elbow, sem var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2014.

Með honum í sveitinni eru eiginkona hans, Ásdís Rósa, Albert Þorbergsson, Brynjar Páll Björnsson, Grétar Már Ólafsson, Hans Júlíus Þórðarson, Hólmsteinn Ingi Halldórsson, Pétur Þór Sigurðsson og Rafn Jóhannesson. Samtals eiga meðlimir sveitarinnar 19 börn og er því gjarnan handagangur í öskjunni í tíðum fjölskyldugrillpartíum sveitarinnar.

Bóseind kærleikans

Í dag kemur út fyrsta plata sveitarinnar, Boson of Love, hjá bandaríska „indie“ útgáfufyrirtækinu Mother West. Hún er fáanleg á öllum stafrænum veitum, svo sem Spotify og Apple Music.

Myndbandið hér að neðan er við titillag þeirrar plötu.

„Lagið fjallar um það hvernig við leitum sífellt að uppruna alheimsins og tilverunnar, t.d. með því að leita að Higgs bóseindinni, sem gefur vísbendingu um að til sé eitthvert orkusvið sem gefi öllum hlutum massa. Samt komumst við lítið nær grundvallarsannleikanum. Af hverju er þetta svið þá til? Hvernig varð það til? En, við getum fundið tilgang lífsins í kærleikanum. Við vitum að hann er til og gefur lífinu gildi. Bóseind kærleikans - Boson of Love,“ útskýrir Ívar.

Útgáfutónleikar í Tjarnarbíói eftir viku

Útgáfutónleikar vegna plötunnar fara fram í Tjarnarbíói eftir viku, föstudaginn 24. nóvember og er hægt  að kaupa miða á tix.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×