Golf

Ólafía tapaði tveimur höggum í dag

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólafía sveiflar á LPGA-mótaröðinni.
Ólafía sveiflar á LPGA-mótaröðinni. vísir/getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék annan hringinn á CME-mótinu í Flóría á 74 höggum í dag eða tveimur höggum yfir pari.

Hún var á tveimur höggum undir pari fyrir fyrsta hringinn og er því samtals á parinu eftir tvo daga.

Ólafía fékk tvo fugla og fjóra skolla á hringnum í dag. Nokkuð stöðugt golf eins og venjulega hjá henni.

Vel var fylgst með henni í dag og má lesa textalýsingu hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×