Fótbolti

Cantona botnar ekkert í Neymar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eric Cantona hefur ekki mikið álit á franska boltanum.
Eric Cantona hefur ekki mikið álit á franska boltanum. vísir/getty
Franska goðsögnin Eric Cantona skilur ekki af hverju Brasilíumaðurinn Neymar færði sig um set frá Barcelona til Paris Saint-Germain.

„Þú veltir því aðeins fyrir þér af hverju leikmaður sem var að spila með Barcelona og Brasilíu komi til Frakklands til að spila á móti Guingamp og Amiens,“ sagði Cantona í samtali við Yahoo.

Hann skilur ekki hvaða hvatar liggja ákvörðun Neymars að baki. Hann efast um að það sé að spila og ná árangri í Meistaradeild Evrópu.

„Meistaradeildin? Það eru í mesta lagi 10 leikir á tímabili. Ég skil ekki af hverju hann fór til Frakklands,“ sagði Cantona.

Hann hefur ekki mikið álit á frönsku úrvalsdeildinni og horfir ekki á leiki í henni.

„Ég hef í raun aldrei horft á frönsku deildina. Hvað á ég að horfa á? PSG á móti Guingamp? Ég hef ekki áhuga á því,“ sagði Cantona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×