Körfubolti

Meistaramánuður hjá Skeggja | Tæp 40 stig að meðaltali í leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
James Harden hefur verið óstöðvandi í nóvember.
James Harden hefur verið óstöðvandi í nóvember. vísir/getty
James Harden, leikmaður Houston Rockets í NBA-deildinni, hefur spilað frábærlega í nóvember.

Harden skoraði 48 stig og gaf sjö stoðsendingar þegar Houston vann 116-142 sigur á Phoenix Suns í nótt.

Harden er með 37,6 stig að meðaltali í átta leikjum í nóvember. Auk þess er hann með 4,8 fráköst og 10,9 stoðsendingar að meðaltali í leik.

Harden er með 47,5% skotnýtingu, 43,9% nýtingu í þriggja stiga skotum og 89,1% vítanýtingu.

Houston hefur unnið sjö af átta leikjum sínum í nóvember og skorað 122 stig að meðaltali í leik.

Harden er stiga- og stoðsendingahæsti leikmaður NBA-deildarinnar í vetur. Hann er með 31,8 stig og 10,1 stoðsendingar að meðaltali í leik.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×