Lífið

„Fólk komið með ógeð á auglýsingum á Snapchat“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Manúela er mjög stór á bæði Snapchat og Instagram.
Manúela er mjög stór á bæði Snapchat og Instagram.
„Fólk er komið með svolítið ógeð á þessum eilífu auglýsingum,” segir Manúela Ósk Harðardóttir, ein vinsælasta snappstjarna landsins um auglýsingar á Snapchat. Á síðustu tveimur árum hefur þeim fjölgað hratt sem auglýsa vörur og þjónustu á Snapchat.

Samkvæmt upplýsingum frá umboðsskrifstofunni Eylendu eru 20-30 íslenskir áhrifavaldar með um 10.000 áhorf daglega á sitt efni en uppundir 30 þúsund fylgjast daglega með stærstu íslensku snöppurunum. Talið er að samfélagsmiðlar séu í dag með um 15-20% af auglýsingamarkaðnum, þar af sé Snapchat með um 3%.

„Og fyrirtæki eru kannski ekki heldur að fatta það að þessi markaðssetning er svolítið farin að snúast við. Fólk verður svo pirrað að sjá sömu vöruna hjá öllum snöppurum endalaust þegar það opnar Snapchat að það frekar sniðgengur vöruna,” segir Manúela sem var ein af tveimur Snapchat stjörnum sem var ítarlega rætt við í þættinum Snapparar í gærkvöldi.

Snapparar er nýjasta þáttaröðin úr smiðju Lóu Pind. Í þeim er fylgst með nokkrum af helstu snöppurum landsins. Allt sjarmerandi fólk með ríkulega athyglisþörf sem hefur náð að laða þúsundir, sumir tugþúsundir Íslendinga til að fylgjast með lífi sínu á Snapchat. Hvaða fólk er þetta og hvers konar fólk nær að slá í gegn á Snapchat? Getur maður lifað á því að vera atvinnuáhrifavaldur?

Fyrsti þáttur Snappara var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi kl. 19:55 þar sem við kynntumst meðal annars snappstjörnunum Binna Glee og Manúelu Ósk. Umsjón þáttanna er í höndum Lóu Pind Aldísardóttur, upptökustjórn og klippingu annaðist Lúðvík Páll Lúðvíksson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×