Lífið

Tók á móti tengdasyninum alblóðugur með hníf í hönd

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hjónin og kántrísöngvararnir Tim McGraw og Faith Hill voru gestir Jimmy Fallon í spjallþættinum The Tonight Show Starring Jimmy Fallon í gær. Hjónin eiga þrjár dætur, Gracie og Maggie, 19 ára og Audrey, 15 ára. Í þættinum lýsti Tim því þegar hann tók eitt sinn á móti kærasta Gracie.

Faith sagði: Ég er búin að hitta hann, hann er rosalega góður náungi,
” sagði Tim í viðtalinu sem má sjá hér fyrir neðan.

Tim vildi samt sem áður hitta hann og heilsa upp á hann, þannig að hann bað vonbiðilinn að koma heim til fjölskyldunnar. Þegar kærastinn kom heim til þeirra var kántrísöngvarinn að undirbúa grillmáltíð. Hann hafði steingleymt að strákurinn væri að koma í heimsókn.

Ég var í hvítri svuntu og með hníf og ég var að skera kjöt,” rifjaði hann upp og hélt áfram. „Þannig að ég var með kjötklessur út um allt á þessari hvítu svuntu, blóð alls staðar og dyrabjallan hringir. Ég fer og svara og þar er strákurinn sem er að deita Gracie og ég er með hníf í hendi og í blóðugri svuntu.

Tim fór ekkert nánar út í það hvað gerðist næst en sagði að allt hefði blessast að lokum.

Tim og Faith eru búin að vera gift í 21 ár og eru á tónleikaferðalagi saman um þessar mundir.

 

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×