Innlent

Talið að 900 börn dvelji í ólöglegu húsnæði

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
ReykjavíkurAkademían og Reykjavíkurborg héldu ráðstefnu um aukna búsetu í óleyfilegu atvinnuhúsnæði, en skortur á leiguhúsnæði og hátt leiguverð hefur valdið þeirri þróun.

 

Samkvæmt vettvangsgögnum Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu er ríflega þúsund manns skráð með lögheimili í atvinnuhúsnæði, þar af 647 karlar, tæplega 300 konur og 94 börn.

 

Slökkviliðið áætlar þó að alls búi 3.660 manns í ólöglegu húsnæði. Ríflega tvö þúsund karlar, þúsund konur og tæplega níu hundruð börn.

 

Svandís Jóna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar og gagnasérfræðingur, gerði rannsókn meðal 140 erlendra verkamanna á höfuðborgarsvæðinu og spurði út í húsnæðishagi.

 

11,4% búa í eigin húsnæði en langflestir, eða 82,8% búa í leiguhúsnæði. 22,5% prósent búa í atvinnuhúsnæði eða 28 af 140 manna hópi. Þar af eru sextíu með skriflegan leigusamning.

 

„En eru þetta góðir samningar? Gildir samningar? Við höfum ekki hugmynd um það,“ segir Svandís.

 

Meðalleiga er 140 þúsund krónur á mánuði í atvinnuhúsnæði en flestir borga tvö hundruð þúsund á mánuði. 43% greiða yfir helming af tekjum sínum í húsaleigu á mánuði.

 

„Ég hugsa að helsta niðurstaðan sé að þetta er mjög óöruggt ástand. Þar að auki hefurðu ekki aðgengi að grunnþjónustu, heimilissorp er ekki hirt, leigan er há þrátt fyrir að húsnæðið sé ekki framúrskarandi og þú ert með lágar tekjur," segir Svandís og bætir við að við hugsum ekki um þetta fólk í daglegu lífi.

 

„Þetta fólk er ekki til, ef svo má segja.“

 

Svandís vill næst kanna eignarhaldið á atvinnuhúsnæðunum. Skoða þurfi til dæmis mikla fjölgun leigufélaga.

 

„Sem eru að kaupa atvinnuhúsnæði í stórum stíl. Mjög margir í heiðarlegum tilgangi og ætla að leigja fyrirtækjum en sumir eru ekki, kannski með það hugarfar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×