Innlent

Of margir Íslendingar þekkja ekki þessar þjóðargersemar

Kristján Már Unnarsson skrifar
Halldór Reynisson, starfandi Skálholtsrektor, sýnir steinkistu Páls biskups.
Halldór Reynisson, starfandi Skálholtsrektor, sýnir steinkistu Páls biskups. Stöð 2/Sigurjón Ólason.
Rúm sextíu ár eru frá því einhverjar merkustu fornleifar Íslendinga fundust í Skálholti. Rektor Skálholtsskóla segir að of margir Íslendingar hafi ekki hugmynd um þessar þjóðargersemar. Myndir af minjunum voru sýndar í fréttum Stöðvar 2.

Skálholt er ekki aðeins fyrsta biskupssetrið heldur var helsta valdamiðstöð Íslands og skólasetur um sjöhundruð ára skeið þar til Suðurlandsskjálfti lagði staðinn í rúst árið 1784. Við fornleifauppgröft árið 1954, í tengslum við endurreisn Skálholts, komu í ljós merkar minjar um hinn forna tíma, þar á meðal jarðgöng, sem eiga sér sögu aftur til Sturlungaaldar. 

„Þetta er sennilega eitt af elstu mannvirkjum sem við eigum úr okkar sögu og menningu hér á Íslandi. Það eru heimildir um þessi göng, að því er talið er, frá því snemma á 13. öld,“ segir Halldór Reynisson, starfandi Skálholtsrektor.

Jarðgöngin í Skálholti fundust árið 1954. Þau eru talin að minnsta kosti 800 ára gömul.Stöð 2/Sigurjón Ólason.
Í hvelfingu undir kirkjunni eru varðveittir ýmsir munir sem fundust við fornleifauppgröftinn, þar á meðal steinkista Páls biskups Jónssonar, sem lést árið 1211. Hann var sonur Jóns Loftssonar í Odda, sem var barnabarn Sæmundar fróða, og fóstraði sjálfan Snorra Sturluson. Í kistunni voru bein biskups og biskupsbagall úr rostungstönn, sem talið er að Margrét hin haga hafi skorið út. 

Halldór kveðst hafa orð sérfræðings á Þjóðminjasafni um að fundur steinkistunnar í Skálholti árið 1954 sé merkilegasti fornleifafundur Íslandssögunnar. 

„Og það eru allt of margir Íslendingar sem hafa bara ekki hugmynd um þetta núorðið. En þetta er bara einn af okkar þjóðargersemum, - einn af fáum gripum sem við eigum frá þjóðveldisöld, - og við vitum hver það var sem hvíldi í kistunni. Og við vitum hvaða listamaður gerði þann listmun sem þar fannst. Þannig að þetta tengir okkur beint við þessa gömlu tíð snemma á 13. öld,“ segir Halldór. 

Skálholt í Biskupstungum. Undir kirkjunni eru varðveittar einhverjar merkustu fornminjar Íslendinga.Mynd/Stöð 2.
Fjallað verður um Skálholt í þættinum „Um land allt“ á Stöð 2 kl. 19.25 á mánudagskvöld. 

Hér má sjá frétt Stöðvar 2 í kvöld:


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×