Íslenski boltinn

Hendrickx samdi við Blika

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hendrickx er hér með Halldóri Orra Björnssyni.
Hendrickx er hér með Halldóri Orra Björnssyni. vísir/andri
Jonathan Hendrickx er á leið í Pepsi-deildina á nýjan leik en hann er búinn að skrifa undir samning við Blika.

Hendrickx spilaði mjög vel með FH leiktíðirnar 2015 og 2016 en yfirgaf FH síðasta sumar og samdi við lið í Portúgal.

Þessi skemmtilegi bakvörður er 23 ára gamall og á klárlega eftir að styrkja Blikaliðið.

Hendrickx kemur um mánaðarmótin til Íslands og mun byrja að æfa með Blikum þann 1. desember. Hér að neðan má sjá stórkostlegt myndband með Hendrickx.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×