Viðskipti innlent

Eins og lítill snjóbolti sem valt niður hæðina

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhenti þeim Knúti Rafni og Helenu nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhenti þeim Knúti Rafni og Helenu nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar. Skapti Örn Ólafsson
Verðlaunin eru okkur mikil hvatning og klapp á bakið til áframhaldandi verka,“ segir Knútur Rafn Ármann í Friðheimum í Bláskógabyggð. Hann og kona hans, Helena Hermundardóttir, tóku á móti nýsköpunarverðlaunum Samtaka ferðaþjónustunnar fyrir árið 2017 á fimmtudaginn úr hendi forseta Íslands.

Knútur Rafn segir þau hjón deila verðlaununum með sínu frábæra starfsfólki sem sé búið að byggja þetta skemmtilega ævintýri upp með þeim í Friðheimum. Þar reka þau garðyrkjustöð og ferðaþjónustu sem hefur slegið í gegn hjá ferðamönnum síðustu ár, ekki síst hestasýningarnar, tómatsúpan og brauðið sem boðið er upp á.

En í hverju felst þeirra nýsköpun helst? „Aðallega í því að flétta saman tómataræktunina og ferðaþjónustuna og bjóða alla velkomna að fylgjast með því sem við erum að gera,“ segir Helena.



„Svo fær fólk að smakka á afurðunum ef það vill. Við gefum okkur ekki út fyrir að vera með hefðbundið veitingahús heldur matarupplifun og bjóðum upp á ýmsa rétti þar sem tómatarnir koma við sögu.

Hvort sem gestir koma í hópum eða sem einstaklingar kynnum við fyrir þeim hvað íslensk garðyrkja snýst um, hvernig við hitum upp gróður­húsin með jarðvarma og hvernig rafmagnið verður til með vatnsaflinu. Svo vökvum við með okkar frábæra lindarvatni, notum engin eiturefni heldur einungis lífrænar varnir og erum með býflugur til sýnis, þær gegna veigamiklu hlutverki við að frjóvga blómin svo við fáum góða uppskeru.“

Helena stýrir ræktuninni en Knútur Rafn ferðaþjónustunni.

„Við erum með mjög gott starfsfólk en erum mikið sýnileg sjálf,“ segir Helena. Hún segir þau hafa byrjað með hestasýningar 2008 því hestar séu ær og kýr Knúts Rafns! „En svo fórum við að bjóða í gróðurhúsið líka og gestum hefur fjölgað mikið.

Við fengum þúsund gesti fyrsta árið en í fyrra voru þeir 130 þúsund og ég held það stefni í 150-160 þúsund á þessu ári þannig að þessi litla hliðarbúgrein, að bjóða gestum heim á bæ að skoða hestana, hefur aðeins undið upp á sig. En við höfum aldrei auglýst heldur hefur starfsemin verið eins og lítill snjóbolti sem valt niður hæðina og stækkaði og stækkaði.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×